Innlent

Leiðin til Bessastaða: „Höfum ekkert við forseta að gera sem er ekki að gæta að hagsmunum okkar“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fyrsta verk Sturlu Jónssonar nái hann kjöri sem forseti Íslands verður að leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingar. Hann gefur lítið fyrir þá túlkun fræðimanna á stjórnarskránni að forseti hafi í raun ekki vald til að leggja fram lagafrumvörp einn heldur þurfi alltaf atbeina ráðherra til, og segir að það standi skýrum stöfum í stjórnarskránni að forseti hafi það vald að geta látið ráðherra leggja fram frumvarp á Alþingi.

Sturla er áttundi og þar með næstsíðasti frambjóðandinn sem kemur í forsetaviðtal Vísis og Stöðvar 2. Var öllum frambjóðendum boðið að koma í viðtal hjá Gunnari Atla Gunnarssyni fréttamanni. Í seinustu viku og þessari hafa viðtölin verið birt í heild sinni hér á Vísi en auk þess verður frétt upp úr hverju viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2. Eitt viðtal birtist á dag og var dregið um röðina til að gæta sanngirni.

Vill að fólk viti hvar það hafi forsetann

Aðspurður segist Sturla skilgreina hlutverk forseta samkvæmt stjórnarskrá og að hann lesi stjórnarskrána en túlki hana ekki, líkt og fræðimenn. Þess vegna ætlar hann sér til dæmis að láta ráðherra leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingar.

En hefur hann ekki íhugað frekar að bjóða sig fram til þings?

„Væri ég þingmaður þyrfti ég að eiga við 63 einstaklinga og sannfæra þá um að málið sé mjög gott. Ég vil að vísu frekar hafa beint lýðræði og þá er það þannig ef ég verð forseti að þá þurfa 63 einstaklingar að sannfæra mig um að vísa málinu ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu og eins þurfa þessir 63 einstaklingar að sannfæra þjóðina um að safna ekki 25 þúsund undirskriftum til þess að fá málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá þurfa þeir að vanda lagasetninguna það vel að fólkið sjái ekki ástæðu til þess að kalla lögin til sín. Það kalla ég lýðræði,“ segir Sturla og bætir við að þetta þýði að hann muni alltaf vísa málum í þjóðaratkvæðagreiðslu ef hann fær 25 þúsund undirskriftir.

„Því fólkið er að kjósa mig, kjósa einstakling sem ætlar að gæta hagsmuna samfélagsins. Ég ætla rétt að vona að fólk sé að kjósa forseta sem er að gæta að hagsmunum sínum. Við höfum ekkert við forseta að gera sem er ekki að gæta að hagsmunum okkar.“

Þá er Sturla á því að forsetinn eigi að lýsa afstöðu sinnar til einstakra deilumála.

 

„Já, ég er alveg á því að hann eigi að vera virkur. Fólk þarf að vita hvar það hefur hann. Hann þarf að vera samkvæmur sjálfum sér,“ segir Sturla.

Viðtalið við hann má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×