Skoðun

Leiðin er grýtt

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Metfylgi Pírata í skoðanakönnunum er hætt að koma á óvart. Fjölmiðlar eyða ekki lengur heilu síðunum í að fjalla um þennan nýja risa í íslenskri pólitík. Fregnir af hverju fylgismetinu á fætur öðru eru ekki lengur efni í uppslætti.

Skoðanakannanir eru eitt – kosningar annað. Ýmislegt getur gerst á þeim tæpu sextán mánuðum sem eru í kosningar. Eru kjósendur Pírata að hóta hefðbundnu flokkunum, og kjósa svo það sem þeir þekkja þegar til kastanna kemur? Hvaða tromp draga framsóknarmenn fram úr erminni núna? Verður sjálfstæðismönnum umbunað fyrir efnahagsbatann? Er Samfylkingin virkilega bara tíu prósenta flokkur?

Fyrir Pírata er sennilega mikilvægast að halda áfram sinni vegferð. Þeir eiga góða talsmenn sem virðast geta tekið skynsamlega og ígrundaða afstöðu til einstakra mála þvert á kreddur eða gamlar flokkslínur. Flokksmenn hafa líka forðast upphrópanir, af því tagi sem sumir íslenskir stjórnmálamenn virðast telja lykilhluta af starfslýsingunni.

Ekki má heldur gleyma að Píratar hafa lagt til nokkur athyglisverð og frumleg stefnumál, til dæmis hugmyndina um borgaralaun.

Stærsta áskorunin í þessum efnum er sennilega sú staðreynd að með hverri könnuninni, og því nær sem dregur kosningum, verður líklegra að Píratabólan sé alls engin bóla, heldur nýr pólitískur veruleiki. Svo getur raunverulega farið að Píratar verði í þeirri stöðu að leiða ríkisstjórn eftir eitt og hálft ár.

Það vekur nátttröllin. Flokkurinn þarf að varast pólitíska lukkuriddara sem sjá sér leik á borði að komast til áhrifa, og telja sig sjálfkjörna til áhrifasæta á framboðslistum.

Ekki er síður mikilvægt að varast að upp úr sjóði innbyrðis. Fyrstu merkin eru komin fram. Birgitta Jónsdóttir, fyrrum kapteinn og einn stofnenda flokksins, hefur gefið út að hún hyggist gefa kost á sér áfram. Í trássi við fyrri yfirlýsingar um að átta ára seta sé algert hámark til að tryggja nauðsynlega endurnýjun og koma í veg fyrir spillingu.

Nú telur hún nauðsynlegt að sitja áfram til að tryggja hugsjónum Pírata framgang. Í sömu andrá lýsir hún því yfir að frjálshyggjufólk sé óvelkomið í Píratahreyfinguna, og hefur ýmsa tilburði í frammi á spjallþræði flokksins. Það er stílbrot hjá forystukonu í flokki sem berst fyrir óheftu tjáningarfrelsi.

Meira í anda Pírata eru yfirlýsingar hennar um stjórnarskrárvinnuna, sem nú fer fram í sérstakri þingnefnd. Birgitta neitar þátttöku í nefndinni á þeim forsendum að um tilraun til að drepa stjórnarskrármálinu á dreif sé að ræða. Þar er hún samkvæm sjálfri sér um að tillögur Stjórnlagaráðs, sem samþykktar hafa verið í þjóðaratkvæði, ættu að vera grundvöllur nýrrar stjórnarskrár. Þar greinir hana á við suma félaga sína.

Píratar eru í öfundsverðri stöðu. Leiðin framundan er hins vegar grýtt. Fyrir þá er heillavænlegast að halda sínu striki, varast lukkuriddara og passa að sundrung meðal áhafnarinnar fari ekki úr böndum.

Annars gæti stjarna Pírata hrapað jafn skyndilega og hún hefur risið.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×