Lífið

Leiðarvísir að Eurovision-partíi

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
vísir/getty
Þá er hin eina sanna Eurovision-helgi gengin í garð og þó að Greta okkar stígi ekki á svið í kvöld þá þýðir það ekki að það verði engin Eurovision-partí. Hóaðu í búningapartí, klæddu þig upp sem uppáhalds Eurovision-keppandinn þinn og keyrðu þetta í gang!

Conchita Wurst kom sá og sigraði árið 2014. Ekki amalegt að klæða sig upp eins og þessi drottning!







Ef þú ert tvíburi er þetta hinn fullkomni búningur fyrir þig! Írsku tvíburarnir kepptu árið 2012 fyrir Írland.





Verka Serdyuchka tók þátt árið 2007. Hressandi búningar og eiga svo sannarlega við árið 2016, þau hefðu bara getað verið að mæta á Met Gala fyrr í mánuðinum.





Ekki amalegt að klæða sig upp eins og Ruslana og taka nokkra vilta dansa í kvöld.



InCulto tóku þátt fyrir hönd Litháens árið 2010. Þeir byrjuðu íklæddir köflóttum síðbuxum en þegar stuðið náði hámarki á sviðinu rifu þeir sig úr og stóðu eftir á pallíettubrók. Rúsínan í pylsuendanum og fullkominn endir á Eurovision-partíinu?





Þegar góða Euro-veislu gjöra skal

Eurovision-veðpottur þar sem hægt er að velja um fyrsta sæti, síðasta sæti og  skemmtileg verðlaun í boði. Eykur enn á spennuna!

Vera með fána, eða blöð með fánum, allra þeirra landa sem eru í úrslitum þannig að hver og einn geti valið hvaða land hann eða hún er eru og heldur með.

Góður drykkjuleikur klikkar aldrei – í þeim efnum er leitarvélin Google góður vinur þinn en fjölmargar útgáfur eru til.

Eurovision-snarl er alveg nauðsynlegt. Sniðugar hugmyndir má meðal annars nálgast í Eurovision-blaði Fréttablaðsins síðastliðinn þriðjudag.

Í FÁSES-fréttabréfinu finnur þú helstu upplýsingar um keppendur, texta og annan fróðleik um keppnina á hverju ári.

Góður lagalisti þar sem búið er að setja saman hin allra bestu Eurovision-lög síðustu ára svo hægt sé að dansa lengi eftir að keppni lýkur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×