Enski boltinn

Leicester nældi í stig gegn Arsenal

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Nýliðar Leicester City nældu í eitt stig þegar þeir tóku á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Alexis Sanchez opnaði markareikning sinn í ensku úrvalsdeildinni í leiknum.

Sanchez skoraði fyrsta mark leiksins um miðbik fyrri hálfleiks þegar boltinn datt fyrir hann í vítateig Leicester eftir slappt skot Yaya Sanogo en Leonardo Ulloa jafnaði metin fimm mínútum síðar.

Þrátt fyrir að Arsenal hefði reynt að setja meiri pressu á Leicester í seinni hálfleik tokst hvorugu liði að bæta við marki og lauk leiknum því með 1-1 jafntefli.

Annað jafntefli Arsenal í röð og er liðið strax komið fjórum stigum á eftir Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×