Enski boltinn

Leicester galopnar veskið og kaupir nýjan framherja

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Slimani í leik með Sporting.
Slimani í leik með Sporting. vísir/getty
Englandsmeistarar Leicester City hafa náð samkomulagi við Sporting frá Lissabon um kaup á öflugum framherja frá Alsír.

Sá heitir Islam Slimani og er 28 ára gamall. Hann skoraði 27 mörk fyrir Sporting á síðustu leiktíð.

Sporting hafði hafnað 25 milljón punda tilboði í leikmanninn en tók tilboði sem er sagt vera í kringum 30 milljónir punda. Það eru 4,6 milljarðar íslenskra króna.

Slimani hefur yfirgefið æfingabúðir alsírska landsliðsins og er á leið í lænkisskoðun hjá Leicester í dag.

Leicester gæti verslað meira frá Sporting þar sem enska félagið hefur einnig áhuga á miðjumanni félagsins, Adrien Silva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×