Fótbolti

Leicester fær Mahrez og Slimani snemma heim

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Riyad Mahrez er á heimleið.
Riyad Mahrez er á heimleið. vísir/getty
Leicester gengur ekkert í titilvörninni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en Refirnir geta huggað sig við það, að framherjarnir Riyad Mahrez og Islam Slimani halda fyrr heim en áætlað var aftur til Englands af Afríkumótinu.

Alsír er nefnilega úr leik en það varð ljóst í kvöld þegar keppni í B-riðli lauk. Alsír gerði 2-2 jafntefli við Senegal og vann ekki einn leik af þremur í riðlinum.

Mahrez og félagar voru í erfiðum málum og þurftu bæði að vinna Senegal í kvöld og vonast til að Zimbabwe myndi gera þeim greiða í hinum leik riðilsins á móti Túnis. Hvorugt varð að veruleika því Túnis vann Zimbana, 4-2.

Islam Slimani skoraði bæði mörk Alsír í kvöld og kom liðinu tvívegis yfir en Moussa Sow jafnaði öðru sinni fyrir Senegal á 53. mínútu og þar við sat, 2-2.

Senegal og Túnis eru komin áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×