Viðskipti innlent

Leggja til lækkun á tekjuskatti leiguverðs

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Lagt er til að tekjuskattur af leigutekjum verði lækkaður. Virðisaukaskattur verði að fullu endurgreiddur vegna vinnu við byggingu, hönnun, viðhalds og endurbóta íbúðarhúsnæðis.
Lagt er til að tekjuskattur af leigutekjum verði lækkaður. Virðisaukaskattur verði að fullu endurgreiddur vegna vinnu við byggingu, hönnun, viðhalds og endurbóta íbúðarhúsnæðis. VÍSIR/VILHELM
Lagðar eru til aðgerðir til þess að styðja við leigumarkaðinn í nýrri skýrslu KPMG og Analytica. Skýrslan er innlegg í vinnu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála. Stjórnin reiknar með því að skila félags- og húsnæðismálaráðherra tillögum sínum í lok apríl.

Lagt er til að tekjuskattur af leigutekjum verði lækkaður. Virðisaukaskattur verði að fullu endurgreiddur vegna vinnu við byggingu, hönnun, viðhalds og endurbóta íbúðarhúsnæðis. Átak verði í í skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu til þess að auka enn frekar framboð byggingalóða fyrir hagkvæmt fjölbýli.

Þetta er lagt til þess að leysa úr þeim vanda sem hefur verið á undanförnum misserum vegna umfram eftirspurnar eftir leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur leitt til þess að leiguverð hefur farið hækkandi. Í skýrslunni kemur fram að líklegast sé um að ræða tímabundið misvægi en það geti þó tekið markaðinn nokkur ár að leysa úr því.

Á landsbyggðinni sé líka víða skortur á leiguhúsnæði. Ástæður þess eru þó að einhverju leyti frábrugðnar því sem er á höfuðborgarsvæðinu. Eðlilegt sé að stjórnvöld leiti leiða til þess að stuðla að því að framboð leiguhúsnæðis aukist á landsbyggðinni. Aðgerðir í þessa veru þurfi að vera í nánu samstarfi ríkis og sveitarfélaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×