Erlent

Leggja mikla áherslu á að Brexit sé ekki upphaf endaloka ESB

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá fundi leiðtoganna í dag.
Frá fundi leiðtoganna í dag. vísir/getty
Útganga Breta úr Evrópusambandinu markar ekki upphafið að endalokum þess segja þau Angela Merkel Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu og Francois Hollande, Frakklandsforseti.

Þau hittust á fundi á Ítalíu í dag til að ræða þá stöðu sem ESB er í vegna þess að Bretar hafa ákveðið að yfirgefa sambandið, en þetta er annað skiptið sem leiðtogarnir hittast eftir Brexit.

„Margir töldu að Evrópusambandið væri búið að vera eftir Brexit en svo er ekki,“ sagði Renzi á blaðamannafundi og bætti við:

„Við virðum auðvitað val Breta en við þurfum að skrifa næsta kafla. Evrópa eftir Brexit mun endurvekja okkar öflugu hugmyndir um einingu og frið, frelsi og drauma.“

Renzi tók á móti Merkel og Hollande á herflugvellinum í Napólí áður en hann fór með þau til eyjunnar Ventotene þar sem þau lögð blóm á leiði Altiero Spinelli en hann er talinn vera einn af upphafsmönnum hugmyndarinnar um að hægt væri að sameina Evrópu.

Spinelli var andvígur fasistastjórninni á Ítalíu sem réði þar ríkjum þegar seinni heimsstyrjöldin geisaði. Hann var því fangelsaður ásamt öðrum hugsjónamanni, Ernesto Rossi, og saman skrifuðu þeir Ventotene-yfirlýsinguna þar sem þeir hvetja til þess að ríki Evrópu stofni með sér einhvers konar samband til að berjast gegn þjóðernishyggjunni sem leiddi til seinni heimsstyrjaldarinnar.

Heimsókn leiðtoganna þriggja var því mjög táknræn. Hollande varaði einmitt við því í dag að þrátt fyrir að ríki Evrópu þyrftu að auka öryggi sitt og berjast af öllum krafti gegn íslömskum öfgamönnum þá mætti þjóðernishyggjan ekki ná yfirhöndinni í álfunni.

Þá minntist Merkel þess að Evrópusambandið hefði verið stofnað eftir einhverja dimmustu tíma sem álfan hefði séð. Nú þyrftu ríki Evrópu hins vegar að vinna saman enda stæðu þau frammi fyrir miklum áskorunum varðandi það að styrkja ytri og innri landamæri, auka hagvöxt og skapa störf fyrir ungt fólk.


Tengdar fréttir

Atvinnuleysi í Bretlandi minnkar í kjölfar Brexit

Einnig minnkaði atvinnuleysi í landinu eftir að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið í júní en nýjustu tölur eru fyrir júlímánuð. Atvinnuleysi í Bretlandi hefur ekki verið minna í ellefu ár og er nú 4,91 prósent.

Stefnir hratt í kreppu í Bretlandi

Meðalhúsnæðisverð í London hefur lækkað um 155 þúsund krónur á dag frá því að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið. Ný skýrsla frá Morgan McKinley sýnir að nýjum störfum í breska fjármálageiranum hafi fækkað um 12 prósen




Fleiri fréttir

Sjá meira


×