Viðskipti innlent

Leggja fram nýja kæru á hendur MS

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kæru Mjólkursamsöluna fyrir að hafa undanfarin tvö ár selt Mjólkurbúinu rjóma á um 20% hærra verði en Mjólku.
Kæru Mjólkursamsöluna fyrir að hafa undanfarin tvö ár selt Mjólkurbúinu rjóma á um 20% hærra verði en Mjólku. visir/pjetur
Forsvarsmenn Mjólkurbúsins KÚ hafa ákveðið leggja fram nýja kæru á hendur Mjólkursamsölunni fyrir að hafa undanfarin tvö ár selt Mjólkurbúinu rjóma á um 20% hærra verði en Mjólku og fyrirtækjum sem eru tengd MS. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mjólkurbúinu.

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins KÚ hefur falið lögmanni fyrirtækisins að kæra Mjólkursamsöluna.

Að mati forsvarsmanna Mjólkurbúsins er hér um að ræða samkeppnishamlandi mismunun sem er brot á 11. gr. Samkeppnislaga.

Eftir langa og ítarlega rannsókn sektaði Samkeppniseftirlitið Mjólkursamsöluna fyrr í þessari viku um 370 milljónir króna vegna annars brots sem laut að verðlagningu á hrámjólk, sem MS seldi Mjólkurbúinu á 17% hærra verði en Mjólku og öðrum tengdum fyrirtækjum.

„Samkvæmt okkar upplýsingum hefur þessi mismunun í rjómasölu til okkar staðið í um það bil tvö ár og skekkt samkeppnisstöðu okkar gagnvart Mjólku og öðrum útvöldum vildarvinum MS,“ segir Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins.

Hann segir að í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um brot MS fyrr í vikunni telji hann rétt að gera grein fyrir öðrum Samkeppnislagabrotum MS sem bitnað hafi á starfsemi Mjólkurbúsins undanfarin misseri.

„Brotið sem MS var sektað fyrir er því miður ekki einangrað dæmi um óeðlilega viðskiptahætti þessa einokunarrisa. Það er mikilvægt að löggjafinn dragi réttan lærdóm af þeim upplýsingum sem hafa komið fram um starfshætti MS að undanförnu og felli niður undanþágur MS frá Samkeppnislögum,“ segir Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins KÚ.


Tengdar fréttir

Uggandi yfir athöfnum MS

„Markaðsmisnotkun er glæpur gagnvart neytendum og í því getum við ekki tekið þátt,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður, á Alþingi í dag.

Notkun gervisykurs jafnvel hætt hjá Mjólkursamsölunni

Ný rannsókn bendir til brenglaðs sykurþols vegna neyslu á gervisykri. Vöruþróunarstjóri MS segir að boðið hafi verið upp á mjólkurvörur með gervisykri sem valkost. Alltaf sé litið til Matvælaöryggisstofnunar Evrópu.

Höfðar skaðabótamál á hendur Mjólkursamsölunni

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú ætlar að höfða skaðabótamál á hendur Mjólkursamsölunni í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirltisins um að MS hafi brotið samkeppnislög.

Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir.

Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS).

MS sektað um 370 milljónir króna

Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×