Enski boltinn

Leeds fær nýjan stjóra

Anton Ingi Leifsson skrifar
Milanic er tekinn við Leeds.
Milanic er tekinn við Leeds. Vísir/Getty
Heimildir Sky Sports herms að Darko Milanic sé tekinn við enska B-deildarliðinu Leeds United sem hefur verið þjálfaralaust frá því í lok ágúst mánaðar.

Dave Hockaday var þá rekinn frá félaginu, en hann stýrði liðinu einungis í sex leikjum.

Milanic er þjálfari Sturm Graz í Sviss, en talið er að Massimo Cellino, eigandi Leeds, hafi virkjað klásúlu í samningi Cellino sem gerir það að verkum að hann megi fara.

Milanic hefur þjálfað Sturm Graz frá síðasta sumri, en liðið er um miðja deild í Austurríki. Áður var hann þjálfari Maribor þar sem hann náði frábærum árangri, vann níu titla á fimm árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×