Körfubolti

LeBron tók fram úr Allen á stigalistanum | Myndbönd

Kyrie Irving og LeBron James.
Kyrie Irving og LeBron James. vísir/getty
LeBron James, stórstjarna Cleveland, hélt áfram að klifra upp listann yfir þá sem hafa skorað mest í sögu NBA-deildarinnar í nótt.

Þá fór James upp fyrir vin sinn og fyrrum félaga hjá Miami Heat, Ray Allen, á stigalistanum. James er því kominn í 21. sætið á þessum lista. Hann er búinn að skora 24.508 stig á ferlinum.

„Hann er einn af mínum bestu vinum. Ég keppti á móti honum áður og ólst upp við að horfa á hann spila. Það var svo frábært að spila með honum og fá að kynnast honum. Ég lærði mikið af honum," sagði James um vin sinn Ray Allen eftir leik en ekki er langt síðan fréttir voru sagðar af því að James vildi fá Allen til þess að taka skóna úr hillunni og spila með Cleveland.

James skoraði annars 27 stig í sigrinum á Boston í nótt en hann skorar nánast aldrei undir 20 stig gegn Boston.

Úrslit:

NY Knicks-Sacramento  86-124

Charlotte-LA Lakers  104-103

Cleveland-Boston  110-79

Atlanta-Houston  104-96

Chicago-Washington  97-92

Memphis-Utah  82-93

Denver-Milwaukee  106-95

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×