Körfubolti

LeBron þakklátur manninum að ofan

Anton Ingi Leifsson skrifar
LeBron eftir leikinn í nótt.
LeBron eftir leikinn í nótt. vísir/getty
LeBron James, stórstjarna Cleveland Cavaliers, var hrærður í nótt eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik NBA eftir sigur á Toronto Raptors í sjötta leik liðanna. Þetta er sjötti úrslitaleikur LeBron á sex árum.

„Ég veit það ekki,” sagði James hrærður þegar hann var spurður hverju hann væri stoltastur af eftir að hafa tryggt sér í sjötta úrslitaeinvígið í röð í NBA.

„Ég hef heyrt allar spurningarnar, en þessi er snúinn. Ég er bara auðmjúkur og þakklátur manninum að ofan fyrir að gefa mér tækifæri til þess að spila leikinn sem ég elska og að ég geti farið hérna út og gerð það öll kvöld fyrri framan mína stuðningsmenn.”

James sagði að hann hefði ekki notið þess til hins ítrasta í fyrra vegna meiðsla Kevin Love og Kyrie Irving, en nú sé staðan önnur.

„Þetta er auðvitað öðruvísi tilfinning í ár. Það var svo mikið að gerast í hausnum á mér, vitandi að Kev yrði ekki með restina af tímabilinu og vitandi að Ky var að glíma við meiðsli frá fyrstu umferð. Ég kunni ekki að meta það," sagði þessi frábæri leikmaður að lokum.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×