Körfubolti

LeBron snýr aftur heim til Cleveland

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
LeBron James hefur greint frá ákvörðun sinni um að snúa aftur til Cleveland og leika með Cavaliers í NBA-deildinni.

Frá þessu er greint á vef Sports Illustrated þar sem hann útskýrir ákvörðun sína í löngu máli.

James, tvöfaldur NBA-meistari með Miami Heat, yfirgaf herbúðir Cleveland árið 2010 eftir að hafa spilað með liðinu síðan hann var valinn í nýliðavalinu 2003. Ákvörðun hans að fara frá Cleveland var afar umdeild á sínum tíma en hann er uppalinn í nágrannaborginni Akron.

Svo umdeild var hún að eigandi Cavaliers ritaði harðort bréf til James sem var aðgengilegt á heimasíðu félagsins þar til fyrr í þessari viku en þá var það fjarlægt.

James nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Miami að tímabilinu loknu í vor en engu að síður töldu margir að hann myndi semja upp á nýtt við félagið og vera áfram í herbúðum þess. James ræddi þó við önnur félög og hefur nú ákveðið að halda aftur heim á leið, eins og hann orðaði það sjálfur.

LeBron er farinn frá Miami.vísir/getty
„Samband mitt við norðausturhluta Ohio felur meira í sér en bara körfubolta. Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrir fjórum árum síðan. Ég geri það í dag,“ sagði LeBron James meðal annars í áðurnefndri grein.

Fjögurra ára vistinni hjá Miami líkti hann við dæmigerðri háskólavist bandarískra ungmenna. Og nú væri hann að koma aftur heim reynslunni ríkari og breyttur maður - sem og betri leikmaður. „Ég mun alltaf líta á Miami sem mitt annað heimili,“ bætti hann við.

Hann talar um fyrrum liðsfélaga sína hjá Miami og það sem þeir afrekuðu saman. Hann fer einnig yfir hversu spennandi tímar eru fram undan hjá Cleveland og að hann hlakki til að takast á við þau verkefni. Þar verður efst á dagskrá að vinna titilinn eftirsótta.

„Ég hafði alltaf trú á því að ég myndi einn daginn snúa aftur til Cleveland og klára minn feril þar. Ég vissi bara ekki hvenær. Ég velti samningsmálunum ekkert fyrir mér eftir tímabilið en ég á tvo stráka og eiginkona mín, Savannah, ber stúlkubarn undir belti.“

Þríeykið Dwayne Wade, LeBron og Chris Bosh spilar ekki lengur saman.vísir/getty
„Ég leiddi því hugann að því hvernig það yrði að ala upp fjölskyldu mína í mínum heimabæ. Ég íhugaði önnur lið en það kom aldrei til greina að fara frá Miami nema til Cleveland. Eftir því sem tíminn leið vissi ég að þetta væri rétt ákvörðun. Hún gerði mig hamingjusaman.“

„Ég ætla ekki að lofa meistaratitli. Ég veit að það er erfitt að standa við það. Við erum ekki tilbúnir - það er ekki séns. Ég vil vinna strax á næsta ári en ég er líka raunsær. Þetta verður langt ferli, mun lengra en það var árið 2010. Það mun reyna á þolinmæði mína.“

„En það er verið að byggja upp ungt lið með nýjum þjálfara. Ég verð gamli maðurinn í hópnum. Ég lít á mig sem læriföður í dag.“

„Ég er tilbúinn að takast á við áskorunina. Ég er að koma heim.“

NBA

Tengdar fréttir

LeBron nýtti sér uppsagnarákvæðið

LeBron James nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Miami Heat og er því laus allra mála samkvæmt heimildum ESPN. Hann hefur verið orðaður við Cleveland Cavaliers undanfarna mánuði.

Utan vallar: Hvað er LeBron James að spá?

Vísir fer yfir hvaða ástæður gætu legið að baki ákvörðun LeBron James um að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Miami Heat. Djúpt er kafað og skoðað hvort hann ætli sér jafnvel að vera áfram hjá Heat og sé að hjálpa liðinu að landa annarri stórstjörnu.

Miami Heat valdi uppáhaldið hans LeBron James

LeBron James ætti að vera ánægður með framgöngu Miami Heat í nýliðavali NBA-deildarinnar í gær en þá valdi félagið uppáhaldsháskólaleikmanninn hans í nýliðavalinu.

LeBron fundar með Pat Riley

Baráttan um þjónustu LeBron James er í fullum gangi og verður það líklega næstu vikurnar. Þó svo honum sé frjálst að fara frá Miami Heat er ekki víst að hann geri það.

NBA-lið láta sig dreyma um að semja við bæði LeBron og Melo

Stærstu fréttir NBA-deildarinnar í körfubolta á síðustu dögum eru án vafa þær að stórstjörnurnar LeBron James og Carmelo Anthony nýttu báðir ákvæði í samningum sínum við lið sín Miami Heat (James) og New York Knicks (Anthony) og geta því samið við hvaða lið sem er í sumar.

LeBron James fundaði með Wade og Bosh í gær

Vinirnir og liðsfélagarnir LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh hittust í gær og ræddu framtíð sína en næstu skref þeirra á körfuboltaferlinum mun einnig ráða miklu um framtíð Miami Heat liðsins í NBA-deildinni í körfubolta. Miami Herald segir frá fundi stjórstjarna Miami Heat liðsins.

Wade og Haslem fylgdu í fótspor James

Dwyane Wade og Udonis Haslem hafa nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Miami Heat og fylgja þar með í fótspor LeBron James.

NBA í nótt: Spurs meistari í fimmta sinn

San Antonio Spurs varð í nótt NBA-meistari í fimmta sinn í sögu félagsins með sigri á Miami Heat, 104-87, í fimmta leik liðanna í lokaúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×