Körfubolti

LeBron og Kyrie óstöðvandi | Myndbönd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron á ferðinni í nótt.
LeBron á ferðinni í nótt. vísir/getty
Leikmenn Philadelphia réðu ekkert við stórstjörnur Clevelad Cavaliers, þá LeBron James og Kyrie Irving.

LeBron skoraði 26 stig, tók 10 fráköst og gaf 13 stoðsendingar í frekar naumum sigri Cleveland.

Kyrie Irving skoraði 39 stig sem er hans besta á þessari leiktíð.

Anthony Davis skorai 36 stig og tók 13 fráköst fyrir New Orleans gegn Dallas en það dugði ekki til þar sem Pelíkanarnir töpuðu samt með tíu stiga mun.

James Harden hefur verið að spila frábærlega fyrir Houston í vetur og hann var með tvennu sjöunda leikinn í röð er Houston pakkaði Portland saman, 130-114.

LA Lakers er að standa sig mun betur en í fyrra en liðið er 9-9 eftir öruggan sigur á Atlanta í nótt.

Úrslit:

Philadelphia-Cleveland  108-112

Phoenix-Denver  114-120

Brooklyn-Sacramento  105-122

Orlando-Milwaukee  96-104

Indiana-LA Clippers  91-70

Dallas-New Orleans  91-81

Portland-Houston  114-130

LA Lakers-Atlanta  109-94

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×