Körfubolti

LeBron í stuði og Cleveland komið í kjörstöðu

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
LeBron James var í stuði fyrir Cleveland í nótt sem vann tólf stiga sigur, 94-82, á Atlanta Hawks í úrslitum Austurdeildarinnar, en annar leikur liðanna fór fram í nótt.

Cleveland byrjaði af krafti og var fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta og einnig í hálfleik, en þá var staðan 54-49.

Þeir héldu svo uppteknum hætti í þriðja leikhluta og unnu að lokum tólf stiga sigur, 94-82, þrátt fyrir að hafa tapað síðasta leikhlutanum með sex stigum.

LeBron skoraði 30 stig og gaf ellefu stoðsendingar, en með sigrinum komst Cleveland í 2-0 í seríunni. Atlanta komnir með bakið upp við vegg.

Dennis Schroeder var stigahæstur hjá Atlanta með þrettán stig, en næsti leikur liðanna fer fram á sunnudagskvöld.

Stuð í Atlanta í nótt: Topp 5 í nótt: LeBron í eldlínunni:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×