Körfubolti

LeBron hætti að fylgjast með liðinu sínu á Twitter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron í baráttu við Kobe Bryant.
LeBron í baráttu við Kobe Bryant. vísir/getty
LeBron James, stórstjarna Cleveland, hætti að fylgjast með félaginu á Twitter og Instagram. Menn voru fljótir að lesa ýmislegt í það.

Vildu margir meina að með þessu væri LeBron að segja að hann ætlaði sér að yfirgefa félagið í annað sinn á ferlinum.

James er að fylgjast með 153 á Twitter. Hann fylgist meðal annars með Rondu Rousey, Liverpool og Sprite-gosdrykknum. Svona eins og flestir.

Í fyrstu vildi James ekkert tjá sig um þetta mál en hann greindi loks blaðamanni frá Cleveland frá ástæðunni.

Hann er farinn að hugsa um úrslitakeppnina. Hann hætti að fylgjast með 14 á Twitter og nánast allt tengt körfubolta. Það gerði hann til þess að losna við óþarfa áreiti tengt boltanum.

„Ég er að reyna að verða andlega sterkari fyrir átökin sem verða mjög erfið,“ sagði James.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×