Körfubolti

LeBron átti forsíðurnar á öllum blöðunum í Ohio-ríki | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Samsett mynd
LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers tókst hið ómögulega í nótt þegar þeir kórónuðu endurkomu sína eftir að hafa lent 3-1 undir á móti ríkjandi NBA-meisturum Golden State Warriors og tryggðu Cleveland sinn fyrsta meistaratitil í 52 ár.

Íbúar Cleveland og alls Ohio-ríkis voru búnir að bíða í meira en fimm áratugi eftir meistaraliði og á þeim tíma virtust atvinnumannalið þeirra alltaf misstíga sig á lokasprettinum þegar útlitið var bjart.

Það að LeBron James hafi yfirgefið liðið á sínum tíma bættist við þann lista en hann snéri aftur heim með það markmið að vinna titilinn með Cleveland Cavaliers.

Cleveland Cavaliers fór í lokaúrslitin í fyrra og tapaði þá fyrir Golden State Warriors en vann svo hreinan úrslitaleik um titilinn á heimavelli Golden State í nótt.

Það þarf því ekki að koma á óvart að myndir af tilfinningaríkum LeBron James hafi prýtt forsíðurnar á öllum blöðunum í Ohio-ríki í morgun.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þessum forsíðum sem segja meira en þúsund orð um mikilvægi þessa sigurs Cleveland Cavaliers liðsins í gær fyrir íbúana í Ohio-ríki.



NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×