Körfubolti

LeBron á þrjá góða vini í NBA-deildinni

LeBron James.
LeBron James. vísir/getty
Það er mikið talað um samskipti LeBron James við liðsfélaga sína hjá Cleveland Cavaliers þessa dagana.

Liðsfélagi hans hjá Cleveland, Kevin Love, sagði á dögunum að LeBron væri ekki búinn að vera besti leikmaður deildarinnar í vetur. James sagði að menn ættu ekki að skamma hann fyrir að hafa sína skoðun.

James segist aðeins hafa eignast þrjá vini í deildinni þó svo hann eigi góða liðsfélaga líka.

„Fólk er svo upptekið af því hverjir séu bestu vinir manns. Ég á þrjá góða vini í deildinni. Það eru Carmelo Anthony, Chris Paul og Dwayne Wade. Svo á ég fullt af liðsfélögum sem mér líkar vel við," sagði James en hvað með Kyrie Irving og Kevin Love?

„Ég skil vel hversu mikilvægur Kyrie er fyrir liðið og það sama á við um Kev."

Love sagði að hann og LeBron væru ekki bestu vinir en samband þeirra væri ekki slæmt. Það væri að þróast á jákvæðan hátt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×