Tónlist

Leaves: Poppararnir í Panamaskjölunum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Leaves í sinni upprunalegu mynd. Hallur er þriðji frá vinstri.
Leaves í sinni upprunalegu mynd. Hallur er þriðji frá vinstri. Vísir/Dreamworks
Hallur Már Hallsson, fyrrum bassaleikari hljómsveitarinnar Leaves, segir það nokkuð spaugilegt að hljómsveitin hafi nú dregist inn í umræðuna um Panamaskjölin.

Hallur starfaði með hljómsveitinni fyrstu árin og er einn af fjórum eigendum sem skráðir voru fyrir aflandsfyrirtækinu Leaves Inc sem var með heimilisfang á Bresku Jómfrúaeyjunum á árunum 2002 – 2004. Ásamt honum voru þeir Arnar Guðjónsson söngvar og  gítarleikari, Arnar Ólafsson gítarleikari og Bjarni Grímsson trommuleikari skráðir sem eigendur félagsins en þeir voru allir liðsmenn Leaves á þeim tíma. Í dag er Arnar Guðjónsson einn eftir upprunalegra liðsmanna.

„Fólk átti von á því að við myndum vera að fá tekjur frá mörgum ólíkum löndum. Þess vegna þótti það besta hugmyndin að staðsetja fyrirtækið á hlutlausum stað og taka svo tekjurnar inn þaðan,“ segir Hallur sem segir hljómsveitina hafa fengið ráðleggingar frá endurskoðanda umboðsskrifstofu sinnar.

„Þetta var fyrir 15 árum síðan og við vorum eitthvað um 22 til 23 ára gamlir. Við þáðum ráðgjöf frá fólki sem við treystum varðandi uppsetningu á félaginu. Okkur var aldrei skilgreint hvaða tekjur ættu að fara þarna inn sérstaklega. Maður leit aldrei á það þannig að við værum að fara gera eitthvað sem þætti skuggalegt skattalega séð. Það var aldrei ætlunin.“

Hallur Már Hallsson í dag.Vísir/Golli
Ekki viðkvæmt mál persónulega séð

Leaves er ein fárra íslenskra sveita sem náð hefur plötusamningi við útgáfurisa erlendis. Félagið Leaves Inc er stofnað árið 2002 eða í kringum þann tíma sem fyrsta breiðskífa sveitarinnar Breathe kom út á vegum Dreamworks í Bandaríkjunum og B-Unique í Bretlandi.

Félagið er lagt niður árið 2004 eftir að sveitin hætti hjá báðum útgáfum og gerði samning við Island Records þar sem önnur breiðskífa þeirra The Angela Test kom út árið 2005. Þriðja plata sveitarinnar hét We are shadows sem kom út árið 2010. Eftir það sagði Hallur skilið við sveitina.

Hallur segir það ekki vera viðkvæmt mál fyrir sig persónulega að hljómsveitin Leaves sé nú hluti af Panamaskjölunum.

„Um leið og þessi læti fóru af stað um daginn þá hef ég gantast með það hér í vinnunni að ég væri svo frægur að hafa átt aflandsfélag.“

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Catch sem sveitin gerði á þeim tíma sem aflandsfélagið Leaves Inc var enn starfandi á Bresku Jómfrúaeyjunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×