Enski boltinn

Lazar Markovic lánaður til Fenerbahce

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Markovic í æfingarleik með Liverpool fyrr í sumar.
Markovic í æfingarleik með Liverpool fyrr í sumar. Vísir/Getty
Liverpool samþykkti í gærkvöld að serbneski kantmaðurinn Lazar Markovic myndi fara á eins árs lánssamning til tyrkneska félagsins Fenerbahce. Er hann því á förum frá félaginu eftir aðeins eitt ár.

Hinn 21 árs Markovic gekk til liðs við Liverpool frá Benfica fyrir aðeins ári síðan fyrir 20 milljónir punda en honum gekk illa að fóta sig á Englandi á sínu fyrsta tímabili.

Lék hann aðeins 19 leiki fyrir Liverpool á fyrsta tímabili sínu hjá félaginu og skoraði í þeim tvö mörk.

Voru miklar væntingar gerðar til hans á sínum tíma er hann gekk til liðs við Liverpool eftir eitt ár í herbúðum Benfica. Hefur hann þrátt fyrir ungan aldur leikið 20 leiki fyrir Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×