Lífið

Lay Low faldi óléttuna: Á í dag þriggja mánaða son með sambýliskonu sinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lay Low eignaðist dreng fyrir þremur mánuðum.
Lay Low eignaðist dreng fyrir þremur mánuðum. vísir/valli
Tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, eignaðist á dögunum sitt fyrsta barn með sambýliskonu sinni Agnesi Ernu Estherardóttir.

Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt. 

Forsíða blaðsins.
Þar segir að Lay Low hafi falið óléttuna og fáir vitað af því að hún væri barnshafandi. „Ég gekk með strákinn og meðgangan gekk mjög vel,“ segir hún í samtali við Séð og Heyrt. Drengurinn fékk nafnið Fróði Stefán og varð á dögunum þriggja mánaða.

Lay Low og Agnes búa á sveitabæ rétt hjá Hveragerði og hafa haldið sínu einkalífi út af fyrir sig.

„Það vissi enginn nema vinir mínir og fjölskylda að ég væri ólétt og mér tókst að að fela það í gegnum alla meðgönguna,“ segir hún.



Fyrir nokkrum dögum setti Lay Low inn færslu á Facebook þar sem hún talar um drenginn sinn. „Sá litli fylgist með á meðan ég syng ný lög fyrir hann. Hann er besti samstarfsmaður sem hægt er að hugsa sér.“

Hello all you lovely people who have been following me and my music.I just wanted to give you a little update since it...

Posted by Lay Low on 3. febrúar 2016

Tengdar fréttir

Nýtt lag frá Lay Low

Lagið heitir Gently og fylgir fréttinni. Gently er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu Lay Low sem kemur út 15. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×