Matur

Laxasteik og laxaborgari með frönskum sætkartöflum

Eva Laufey Kjaran skrifar
Laxasteik
Laxasteik

Ofnbakaður lax í hnetuhjúpi

Hollur og góður kostur t.d. í matarboð eða bara hversdags.

Berið gjarnan fram með bökuðum kartöflum og jógúrtdressingu.

1 laxaflak

gróft sjávarsalt

nýmalaður svartur pipar

hunangs-dijonsinnep

Hnetuhjúpur

100 g hnetur, t.d. hesli- og pekanhnetur

4 msk. brauðrasp

steinselja

börkur af einni sítrónu

1 msk. olía

2 hvítlauksrif, fínt rifin

sjávarsalt

1 Hitið ofninn í 180°C.

2 Snyrtið laxaflakið og setjið í eldfast mót eða á pappírsklædda bökunarplötu.

3 Kryddið laxinn til með salti og pipar og penslið sinnepinu yfir hann. Dreifið hnetuhjúpnum yfir og þjappið honum vel ofan í sinnepið með höndunum, þannig að hann haldist vel á. Bakið í 15 mínútur. Takið þá laxinn út úr ofninum og látið hann standa í 5 mínútur áður en þið berið hann fram en þannig eldast hann aðeins lengur.

Jógúrtdressing

2 dl grískt jógúrt

1 hvítlauksgeiri

1 msk. hunangs-dijonsinnep

smátt söxuð steinselja

salt og pipar



Blandið öllu saman og bragðbætið með salti og pipar.

matur

Laxaborgari með dillsósu og franskar sætkartöflur 

350 g ferskur lax, beinhreinsaður 

1 egg

2 msk. sojasósa

1 tsk. rifið engifer

1 rautt chili 

2-3 dl brauðrasp

Salt og nýmalaður pipar

150 g sesamfræ til að hjúpa með



1 Saxið laxinn niður með hníf og setjið í skál. 

2 Blandið hinum hráefnunum saman við og mótið í fjóra laxaborgara. 

3 Veltið borgurunum upp úr sesamfræjum og steikið við miðlungshita í um það bil 2-3 mínútur á hvorri hlið. 



Dillsósa

Hnefafylli dill, saxað

Börkur og safi úr einni límónu

2 dl majónes

salt og svartur pipar

Maukið saman í matvinnsluvél eða með skeið.

 

Franskar sætkartöflur

Sætar kartöflur eru ansi bragðgóðar. Þær passa við hvaða máltíð sem er, þær innihalda minni sykur en venjulegar kartöflur og eru stútfullar af C-vítamíni og trefjum.

Mér finnst gott að sjóða þær, steikja þær, grilla þær og baka þær í ofni eins og ég ætla að gera núna. 

Sætar kartöflur skornar í aflangar sneiðar eins og franskar kartöflur. Þeim er svo velt upp úr ólífuolíu, maldonsalti, grófum pipar og góðri kryddjurtablöndu, til dæmis Best á allt frá Pottagöldrum. Kartöflurnar bakaðar við 220 gráður í um 30 mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×