Innlent

Laun grunnskólakennara hafa hækkað minna en launavísitala

Snærós Sindradóttir skrifar
Fulltrúar grunnskólakennara mættu til fundar við viðsemjendur sína frá sveitarfélögunum hjá ríkissáttasemjara í gær.
Fulltrúar grunnskólakennara mættu til fundar við viðsemjendur sína frá sveitarfélögunum hjá ríkissáttasemjara í gær. vísir/jói k.
Grunnlaun grunnskólakennara með tíu ára starfsreynslu eru nú ríflega 440 þúsund krónur en laun grunnskólakennara hafa hækkað um 86,7 prósent á tíu ára tímabili. Launin hafa því hækkað minna en sem nemur launavísitölu sem nemur 92,7 prósentum. Samninganefndir kennara og sveitarfélaga funduðu í gær og munu hittast á ný á morgun.

Ragnar Þór Pétursson
Grunnskólakennarar eru samningslausir síðan í sumar og hafa tvívegis fellt samninga síðan þá. Í dag, þriðjudag, hafa grunnskólakennarar verið hvattir til að ganga úr vinnu klukkan 14.30 og mæta á kröfufund kennara í Háskólabíói.

Þá verða sambærilegir fundir í Hafnarfirði og Reykjanesbæ og kennarar ætla að fjölmenna á áhorfendapalla á fundi borgarstjórnar til að krefjast hærri launa.

„Ég á ekki von á því að þetta muni hafa áhrif á kennslu enda henni að mestu lokið á þessum tíma,“ segir Ragnar Þór Pétursson, kennari og einn skipuleggjenda fundarins.

Sé tekið mið af launareiknivél á vef Félags grunnskólakennara sést að grunnskólakennari sem er að hefja störf og hefur eins árs starfsreynslu er með 397.555 krónur í grunnlaun. Þess utan fá kennarar svokallaða annaruppbót tvisvar á ári, í desember og júní, 76.500 krónur í hvort skipti. Samtals 153 þúsund krónur í uppbót árlega.

Kjarasamningur grunnskólakennara frá 2014 gerði meðal annars ráð fyrir því að afsal áunninna réttinda um að kenna færri tíma á viku eftir því sem liði á starfsævina gæti falið í sér kjarabætur. Níutíu prósent kennara afsöluðu sér þeim réttindum.

Ragnar segir að semjist ekki á næstu tveimur vikum megi gera ráð fyrir því að kennarar fái endanlega nóg, segi upp og leiti í önnur störf.

„Við höfum fellt sama kjarasamninginn tvisvar. Það virðist vera þjóðarsátt um það að kennarar séu láglaunastétt. Þeir ná ekki meðallaunum og eru talsvert langt frá því. Þegar stefnt var að stöðugleika var áfram miðað við að við værum láglaunastétt og við sættum okkur ekki við það.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×