Innlent

Laun bæjarfulltrúa hækka um 44 prósent

Sveinn Arnarsson skrifar
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt 44 prósenta launahækkun kjörinna fulltrúa.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt 44 prósenta launahækkun kjörinna fulltrúa. vísir/gva
Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar ákvað á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn miðvikudag að hækka laun sín um 44 prósent og fylgja þar með ákvörðun kjararáðs um hækkun þingfararkaups. Meirihlutinn telur að fyrst þingmenn ætli ekki að aðhafast um sína launahækkun sé það óráðið að bæjarfulltrúar hlutist til um sín laun.

Eftir launahækkun kjörinna fulltrúa reiknast Fréttablaðinu til að oddviti Bjartrar framtíðar verði með rúmar 900 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir stjórnunarstörf og setu í hinum ýmsu nefndum og oddviti Sjálfstæðisflokksins verði með um 850 þúsund krónur.

Rósa Guðbjartsdóttir
Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingar, gagnrýnir launahækkunina. „Við lögðum það til strax í október að þessi dæmalausa ákvörðun kjararáðs myndi ekki hafa áhrif á laun bæjarfulltrúa. Var málinu frestað þar til að Alþingi hefði tekið málið fyrir sem enn hefur ekki verið gert. Samt sem áður er þessi hækkun keyrð í gegn,“ segir Gunnar Axel.

Laun kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa eru í langflestum sveitarfélögum hlutfall af þingfararkaupi þingmanna. Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki tekið ákvörðun um að fara eftir hækkun kjararáðs en heimildir Fréttablaðsins herma að önnur sveitarfélög muni fylgja í humátt á eftir Hafnarfirði og hækka laun bæjarfulltrúa um 44 prósent.

Gunnar Axel Axelsson
„Í rauninni ákváðum við í júlí síðastliðnum að tengja laun bæjarfulltrúa við þingfararkaup einmitt til að taka þetta úr höndum kjörinna bæjarfulltrúa að ákveða laun sín sjálfir,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Það er óeðlilegt að kjörnir fulltrúar ákvarði sín laun sjálfir. Í kjölfar ákvörðunar kjararáðs þann 1. nóvember frestuðum við gildistöku þeirrar hækkunar til að sjá hvort Alþingi ætlaði að gera eitthvað í málinu. Þingmenn ákváðu fyrir jól að breyta ekki sínum launum og því afturkölluðum við frestunina og höldum sama striki og Alþingi,“ segir hún.

„Bæjarfulltrúastarfið er aukastarf en launin í dag eru í mörgum tilvikum umtalsvert hærri en þau mánaðarlaun sem bæjarstarfsmenn fá fyrir fulla vinnu,“segir Gunnar Axel. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×