Innlent

Laugavegur opnaður að nýju í dag

Þórgnýr Albertsson skrifar
Ný vatnslögn við Kringlumýrarbraut olli umferðartöfum um helgina.
Ný vatnslögn við Kringlumýrarbraut olli umferðartöfum um helgina. Fréttablaðið/GVA
Opna átti inn á Laugaveg við Kringlumýrarbraut í morgun. Frá föstudegi hafa gatnamótin verið lokuð sökum nýrrar vatnslagnar meðfram Kringlumýrarbraut. Þar stendur til að leggja nýjan hjólastíg við hlið gönguleiðar meðfram götunni.

Upphaflega stóð til að opna gatnamótin í gærmorgun en lokunin var framlengd um sólarhring vegna tafa sem orsökuðust af mikilli mold og stórgrýti sem lágu í undirfyllingu götunnar.

„Beðist er velvirðingar á mögulegum töfum í umferðinni,“ segir í tilkynningu á vefsíðu Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×