Innlent

Laugardalslaug stífluð á nýársdag

Sveinn Arnarsson skrifar
Ein sundlaug í Reykjavík, Laugardalslaug, er opin á nýársdag.
Ein sundlaug í Reykjavík, Laugardalslaug, er opin á nýársdag. Fréttablaðið/Hanna
Örtröð myndaðist í Laugardalslaug í gær á fyrsta degi ársins. Um fjögur þúsund gestir sóttu laugina heim á þeim sex klukkustundum sem hún var opin og þurftu baðgestir að bíða eftir skápum og að komast í sturtu.

Þegar blaðamaður hringdi í Laugardalslaug um miðjan dag í gær afsakaði starfsmaður sig með þeim orðum að það væri það mikið að gera að hann hefði engan tíma til að tala í símann, slík væri örtröðin.

„Það var mikið að gera hjá okkur og álag á okkar starfsfólki mikið,“ segir Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður Laugardalslaugar.

„Þessi dagur hefur síðustu ár verið einn af stóru dögum ársins og því höfum við tekið á það ráð að vera með aukinn mannskap á vaktinni.“

Logi Sigurfinnsson, forstöðumðaur Laugardalslaugar og Sundhallar Reykjavíkurvísir/eyþór
Laugardalslaug var eina sundlaugin sem var opin í Reykjavík í gær en sú hefur einnig verið raunin síðustu ár. Flykkjast því margir í laugina á þessum degi.

„Þessi umræða kemur upp árlega, hvort fleiri laugar eigi að vera opnar. Á næsta ári verður Sundhöllin opin. Hún hefur verið með sama þjónustustig og Laugardalslaugin og því gæti hún tekið við einhverjum fjölda einnig,“ segir Logi.

Gestakoman er ekki jöfn yfir daginn en flestir gestanna mæta um þrjúleytið á nýársdag. Opnað er í hádeginu og er opið til sex þennan daginn.

„Þegar mest lætur er fólk að bíða eftir skápum og sturtum. Við erum með um 800 skápa í lauginni og því er mikið af fólki þegar mest er,“ segir Logi en ferðamönnum hefur fjölgað gífurlega síðustu ár og sérstaklega hefur þeim fjölgað sem sækja Ísland heim yfir jól og áramót.

„Sá hópur sem sækir laugina þennan dag er öðruvísi saman settur en aðra daga. Á öðrum degi jóla, sem er einnig stór dagur hjá okkur í lauginni, mæta næstum eingöngu Íslendingar til okkar. Því er öfugt farið á fyrsta degi ársins en þá mæta mun fleiri ferðamenn til okkar en vanalega,“ bætir Logi við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×