Formúla 1

Lauda: Þetta mun allt velta á ræsingunni á morgun

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton ræðir við Niki Lauda.
Lewis Hamilton ræðir við Niki Lauda. Vísir/Getty
„Þeir eru mjög fljótir þessa helgina og það verður hörð keppni á morgun. Ferrari er með góðan keppnishraða og vonandi dugar ráspóllinn til að verjast þeim. Við munum gera allt sem við getum til að láta dekkin endast eins lengi og þeir. Ég er bjartsýnn, enda í góðri stöðu,“ sagði fljótasti maður dagsins, Lewis Hamilton.

„Það var góður árangur hjá okkur í dag að ná að troða okkur á milli þeirra. Við erum mjög ánægðir með stöðu mála og hversu samkeppnishæfir við erum. Við tökum þetta skref fyrir skref og gerum okkar besta í keppninni á morgun, ef það þýðir að pressa á Mercedes þá látum við vaða. Markmiðið okkar er að passa upp á okkur sjálfa, en ef það er tækifæri til að berjast þá verðum við að reyna að nýta það,“ sagði kampakátur Sebastian Vettel á blaðamannafundi eftir tímatökuna.

„Ég setti ekki nógu mikið í tímatökuna, ég einbílndi of mikið á keppnina. Það hefði verið í lagi ef ég hefði verið annar á eftir Lewis en ekki fyrst ég ræsi þriðji,“ sagði niðurlútur Nico Rosberg.

„Ég bjóst ekki við þessu, ég bjóst ekki við að Sebastian yrði svona fljótur og að það kæmi mér svona illa. Ég klúðraði málunum í dag og er alls ekki sáttur við það,“ bætti Rosberg við.

„Lewis stóð sig vel undir pressunni frá Vettel í dag, því miður gat Nico ekki náð honum líka. Þetta mun allt velta á ræsingunni á morgun,“ sagði Niki Lauda, fyrrum heimsmeistari ökumanna og sérstakur ráðgjafi Mercedes.

„Þetta hefur verið erfið helgi, mér fannst ég hafa meira að gefa í tímatökunni. Ég veit ekki hvert vandamálið var en ég giska á að það sé rafmangstengt,“ sagði Jenson Button. Hann vonast nú eftir einhverri skemmtun í keppninni á morgun en hann ræsir aftast.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 14:30 á morgun á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með úrslitum tíamtökunnar og æfinga.


Tengdar fréttir

Hamilton á ráspól í fjórða skiptið

Ökuþórinn Lewis Hamilton verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein um helgina, en þetta er í fjórða skiptið sem hann verður á ráspól á þessu tímabili.

Bílskúrinn: Sögur af Sjanghæ

Lewis Hamilton snéri aftur á efsta þrep verðlaunapalsins í Kína. Fast á hæla hans fylgdi pirraður liðsfélagi hans, Nico Rosberg. Allt er þá orðið eðlilegt aftur í Formúlu 1.

Rosberg: Lewis ók fáránlega hægt

Hver sagði hvað eftir keppnina í Kína? Lewis Hamilton vann. Þetta var keppni liðsfélaga enda vann Mercedes og Ferrari var þar rétt á eftir og svo kom Williams.

Ferrari og Mercedes fljótastir á föstudegi

Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins, liðsfélagi hans, Sebastian Vettel varð annar. Nico Rosberg á Merceds var fljótastur á seinni æfingunni og liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð annar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×