Fótbolti

Lars og Heimir í hópi bestu þjálfara ársins hjá World Soccer

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lars Lagerbäck, Heimir Hallgrímsson og strákarnir fagna hér sæti á EM 2016.
Lars Lagerbäck, Heimir Hallgrímsson og strákarnir fagna hér sæti á EM 2016. Vísir/Vilhelm
Hið virta knattspyrnutímarit World Soccer er búið að gera upp árið með árlegum útnefningum sínum og að þessu sinni á Ísland fulltrúa af tveimur listum af þremur.

Íslensku landsliðsþjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson eru meðal bestu þjálfara ársins en afrek þeirra að koma 330 þúsund manna þjóð í úrslitakeppni EM 2016 hefur ekki farið framhjá þeim á World Soccer.

Barcelona vinnur samt alla flokka, Lionel Messi er leikmaður ársins 2015, Luis Enrique var besti þjálfarinn 2015 og Barcelona lið ársins 2015.

Lars og Heimir eru í fimmta sæti listans en tveir félagsþjálfarar (Luis Enrique og Pep Guardiola) og tveir landsliðsþjálfarar (þjálfarar Síle og Norður-Írlands) eru á undan þeim.

Íslenska landsliðið tryggði sér sæti á EM í Frakklandi í haust og var komið með farseðillinn þegar tveir leikir voru enn eftir í undankeppninni. Liðið fór næstum því alla leið með því að vinna Hollendinga í Amsterdam en gulltryggði sæti með markalausu jafntefli við Kasakstan nokkrum dögum síðar.

Lars og Heimir fengu alls þrjú stig, einu minna en Michael O’Neill, landsliðsþjálfari Norður-Íra en einu meira en þeir Max Allegri hjá Juventus og Diego Simeone hjá Atletico Madrid.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er einnig meðal liða ársins en íslenska liðið hafnaði í fjórða sæti í kosningu World Soccer og eina landsliðið sem var ofar eru Suður-Ameríkumeistarar Síle.

Besti þjálfari ársins 2015 að mati World Soccer

1. Luis Enrique, Barcelona    49 atkvæði

2. Jorge Sampaoli, Síle    15

3. Pep Guardiola, Bayern München    10

4. Michael O’Neill, Norður-Írland     4

5. Lars Lagerbäck/Heimir Hallgrímsson, Ísland 3

6. Max Allegri, Juventus    2

6. Diego Simeone, Atletico Madrid    2

8. Carlo Ancelotti, Real Madrid    1

8. Pal Dardai, Ungverjaland   1

8. Gianni Di Biaisi, Albanía    1

8. Eusebio Di Francesco, Sassuolo    1

8. Eddie Howe, Bournemouth    1

8. Jorge Jesus, Benfica/Sporting Lissabon    1

8. Joachim Löw, Þýskaland    1

8. Jose Mourinho, Chelsea    1

8. Luis Felipe Scolari, Guangzhou Evergrande    1

8. Uli Stielike, Suður-Kórea  1

8. Unai Emery, Sevilla    1

8. Hein Vanhaezebrouck, Gent    1

Lið ársins 2015 að mati World Soccer

1. Barcelona    82 atkvæði

2. Síle    9

3. Bayern München     3

4. Ísland    2

5. Þýskaland     1

5. Tyrkland    1

Besti leikmaður ársins 2015 að mati World Soccer (topp 20, sjá allan listann):

1. Lionel Messi, Barcelona & Argentína    927 atkvæði

2. Cristiano Ronaldo, Real Madrid & Portúgal    702

3. Neymar, Barcelona & Brasilía    675

4. Luis Suarez, Barcelona & Úrúgvæ   582

5. Robert Lewandowski, Bayern München & Pólland    450

6. Thomas Muller, Bayern München & Þýskaland    240

7. Andres Iniesta, Barcelona & Spánn    222

8. Zlatan Ibrahimovic, Paris Saint-Germain & Svíþjóð   196

9. Paul Pogba, Juventus & Frakkland     137

10. Manuel Neuer, Bayern München & Þýskaland     131

11. Alexis Sanchez, Arsenal & Síle   123

12. Eden Hazard, Chelsea & Belgía    102

13. Sergio Aguero, Manchester City & Argentína    98

14. Kevin De Bruyne, Wolfsburg/Manchester City & Belgía    78

15. Arturo Vidal, Juventus/Bayern München & Síle    73

16. Gianluigi Buffon, Juventus & Ítalía    72

17. Carlos Tevez, Juventus/Boca Juniors & Argentína    43

18. Yaya Toure, Manchester City & Fílabeinsströndin    39

19. Gareth Bale, Real Madrid & Wales    36

19. Ivan Rakitic, Barcelona & Króatía   36


Tengdar fréttir

Íþróttamaður ársins 2015 | Heildarniðurstöður kjörsins

Eins og fram kom á Vísi í kvöld var sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir kjörinn Íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttamanna en niðurstöður kosningarinnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×