Íslenski boltinn

Lars Lagerbäck gefur KSÍ svar í febrúar | „Við verðum bara bíða og vona," segir Geir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck. Vísir/Vilhelm
Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands kíkti um borð í Akraborgina á X-inu í dag og ræddi við Hjört Hjartarson um Evrópumót landsliða í fótbolta en dregið verður í riðla á laugardaginn. Á mánudaginn hefst síðan sala á miðum á leiki íslenska liðsins.

„Það er búin að búin að byggjast upp spenna og áhugi fyrir þessum drætti á laugardaginn. Það er mikil vinna hjá okkur þegar að baki og mikil vinna framundan. Mikið mun líka breytast á laugardaginn þegar við munum vita á móti hverjum við keppum og hvar," sagði Geir.

„Þá fer undirbúningurinn á næsta stig og stuðningsmenn og áhugafólk fer þá að líta til þess hvar þau ætla að vera í júní," sagði Geir.

Íslenska liðið hefur þegar fundið sér dvalarstað í Frakklandi á meðan mótinu stendur. Liðið mun hafa aðsetur í Annecy í suðausturhluta Frakklands. Skiptir miklu máli að Ísland lendi í riðli sem spilar leikina nálægt Annecy,

„Nei ég held ekki. Það gæti verið einn leikur í rútu en annars mun liðið fljúga í leikina frá flugvelli sem er ekki langt frá. Þeir munu alltaf fara á leikstaðinn daginn áður og dvelja þar á hóteli í viðkomandi borg nóttina áður," sagði Geir.

Lars Lagerbäck tók við íslenska landsliðinu fyrir fjórum árum og er það einhver mesti happafengur frá upphafi fyrir íslenska knattspyrnu. Lars Lagerbäck hefur talað um það að hætta með landsliðið eftir EM en KSÍ er ekki búið að gefa upp vonina með að hann haldi áfram.

„Við erum búnir að ganga frá því að Heimir heldur áfram með liðið. Ég hef rætt við Lars og í bæði skiptin þá tókst mér aðeins að gera við hann tveggja ára samning. Annað var ekki rætt. Hann hefur talað um það sjálfur að hann ætli að setjast í helgan stein nema eitthvað mjög áhugavert komi upp. Ég hef rætt við hann um möguleikann á því að halda áfram og hann ætlar að ræða það við mig í febrúar. Við verðum bara bíða, sjá til og vona. Annars mun Heimir tala við," sagði Geir.

Það má heyra allt viðtalið við Geir Þorsteinsson með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×