Fótbolti

Lars á íslensku: "Áfram Stjarnan“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Allir eru Stjörnumenn í kvöld.
Allir eru Stjörnumenn í kvöld. Mynd/Skjáskot af Youtube
Silfurskeiðin, hin magnaða og litríka stuðningssveit Stjörnunnar, birti í morgun myndband þar sem þjóðþekktir einstaklingar sem ekki eru Stjörnumenn, lýsa yfir stuðningi við liðið í kvöld.

Meðal þeirra sem birtast í myndbandinu eru Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfarar. Einnig má sjá Ólaf Stefánsson handknattleikshetju, Hjörvar Hafliðason sjónvarpsmann, Helga Björnsson söngvara og Gary Martin, leikmann KR og góðvin Silfurskeiðarinnar.

Silfurskeiðin ætlar að hita upp á Ölveri í kvöld. Klukkan átta munu þeir efna til skrúðgöngu á Laugardalsvöll og verður meðal annars flugeldasýning á leiðinni.


Tengdar fréttir

Mazzarri: Höfum öllu að tapa

Stjarnan og Inter mætast í kvöld í fyrri leik liðanna í fjórðu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

"Í kvöld eru allir í Silfurskeiðinni“

Vísir birtir texta Silfurskeiðarinnar svo allir geti sungið með á Laugardalsvelli í kvöld. Silfurskeiðin efnir til skrúðgöngu í kvöld og verður flugeldasýning á leiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×