Fótbolti

Lars: Megum ekki slaka á

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lars leggur áherslu á að íslenska liðið haldi einbeitingu í næstu leikjum.
Lars leggur áherslu á að íslenska liðið haldi einbeitingu í næstu leikjum. vísir/vilhelm
Lars Lagerbäck, annar landsliðsþjálfara Íslands, segir mikilvægt að íslenska liðið einbeiti sér að leikjunum tveimur gegn Lettlandi og Tyrklandi, frekar en að horfa strax til lokakeppni EM í Frakklandi næsta sumar.

„Það er mikilvægt að leikmenn haldi einbeitingu. Það væri auðvelt fyrir alla sem að liðinu koma að slaka á nú þegar EM-sætið er í höfn, en við verðum að passa að það gerist ekki,“ sagði Lars í samtali við Vísi eftir blaðamannafund í höfuðstöðvum KSÍ í dag þar sem landsliðshópurinn fyrir leikina gegn Lettland og Tyrkland var tilkynntur.

„Ég held að leikmennirnir fari ekki fram úr sér. Þeir þurfa að vera einbeittir og gefa allt sem þeir eiga í leikina.“

Erfiðir leikir framundan

Ísland mætti Tyrklandi og Lettlandi í fyrstu tveimur leikjum undankeppninnar og vann þá báða 3-0. Lars býst við erfiðari leikjum núna.

„Það tók tíma að brjóta Lettana á bak aftur síðast, við skoruðum ekki fyrr en eftir rúman klukkutíma. Ef þú horfir á úrslitin hjá þeim, þá hafa þeir verið inni í öllum leikjum, fyrir utan einn (6-0 fyrir Hollandi), og gert mótherjunum erfitt fyrir. Þetta verður erfiður leikur líkt og gegn Tyrklandi,“ sagði Lars.

„Tyrkir eru með gott lið en það vantaði eitthvað hjá þeim í fyrri leiknum. Þeir eru með mjög góða leikmenn svo þetta verður strembinn leikur, sérstaklega vegna þess mikla stuðnings sem þeir fá á heimavelli.

„Þetta verður góð prófraun fyrir okkar lið,“ bætti Lars við en leikurinn gegn Tyrkjum fer fram í borginni Konya, á heimavelli úrvalsdeildarliðsins Konyaspor. Tyrkir hafa spilað tvo leiki í undankeppninni á þessum velli; gerðu 1-1 jafntefli við Letta í öðrum leiknum og unnu öruggan 3-0 sigur á Hollandi í hinum.

Ekki miklar breytingar

Lars á ekki von á því að nýta leikina tvo sem framundan eru til að prófa nýja hluti.

„Við verðum ekki með neina tilraunastarfsemi. Við gerum hugsanlega einhverjar leikmannabreytingar en höfum ekki ákveðið neitt í þeim efnum. Ef það verða breytingar verða þær ekki margar,“ sagði Lars sem er ánægður með ástandið á landsliðsmönnunum.

„Staðan er fín. Það eru að vísu ekki allir fastamenn hjá sínum félagsliðum en á heildina litið eru flestir að spila.“

Lars og Heimir Hallgrímsson gerðu aðeins eina breytingu á hópnum frá leikjunum gegn Hollandi og Kasakstan í síðasta mánuði. Rúnar Már Sigurjónsson dettur út og Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður Rosenborg, kemur inn í hans stað.

„Hólmar hefur verið að banka á dyrnar að undanförnu,“ sagði Lars en Hólmar á tvo landsleiki að baki.

„Hann hefur spilað mjög vel með Rosenborg, bæði í Noregi og í Evrópudeildinni. Hann á skilið að vera valinn og mun öðlast mikilvæga reynslu og gæti reynst okkur vel í framtíðinni,“ sagði Lars að lokum.


Tengdar fréttir

Miðasala á EM hefst 17. desember

Stuðningsmenn íslenska landsliðsins geta byrjað að kaupa miða á leiki liðsins á EM í Frakklandi 17. desember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×