Fótbolti

Lars: Hreifst af líkamstjáningu strákanna þegar ég horfði aftur á Tékkaleikinn

Óskar Ófeigur Jónsson í Amsterdam skrifar
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfarar.
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfarar. Vísir/Anton
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í efsta sæti síns riðils þökk sé sigri liðsins á Tékkum í Laugardalnum í júní síðastliðnum. Framundan er leikur við Holland í Amsterdam á fimmtudagskvöldið.

Lars Lagerbäck, annar þjálfara íslenska liðsins, var afar ánægður með það hvernig liðið brást við þegar Tékkar komust yfir í Laugardalnum.

Tékkar voru bara með forystuna í fimm mínútur og eftir sextán mínútur var Kolbeinn Sigþórsson búinn að skora sigurmarkið í leiknum. Í stað þess að brotna við að fá á sig markið þá fór íslenska liðið í gang og tók yfir leikinn.

„Það sýnir karakterinn í leikmönnum liðsins. Þegar við skoðuðum Tékkaleikinn aftur þá var ég mjög hrifinn af líkamstjáningunni hjá leikmönnum liðsins eftir að liðið lenti undir því einbeitingin þeirra varð enn meiri," sagði Lars Lagerbäck um Tékkaleikinn og hann tók líka dæmi.

„Við sáum það meðal annars þegar við fengum horn og Gylfi var fljótur að taka það og koma boltanum í strax í leik. Hugarfarið hjá leikmönnum liðsins og karkater þeirra hafa verið til mikillar fyrirmyndar," segir Lars Lagerbäck sem má vissulega vera stoltur af frammistöðu bæði þjálfaranna og leikmannanna.

„Ég held að þeir séu að hlusta á okkur Heimi því það lítur þannig út á vellinum. Þeir skila því inn á vellinum sem við viljum að þeir spili," sagði Lagerbäck.


Tengdar fréttir

Lars: Alltaf slæmt að missa góða leikmenn

Landsliðsþjálfarinn var að vonum svekktur eftir að í ljós kom að Emil Hallfreðsson getur ekki tekið þátt í leik liðsins gegn Hollandi á fimmtudaginn.

„Verðum að notfæra okkur að pressan er á þá“

Birkir Bjarnason, hárprúði kantmaður landsliðsins, segir að á góðum degi geti okkar menn lagt hvaða þjóð sem er að velli. Pressan sé á Hollendingum fyrir leikinn á fimmtudag í A-riðli undankeppni EM 2016.

Lars hikaði ekki við að skjóta aðeins á Aron Einar

Það fer vel á með landsliðsþjálfaranum Lars Lagerbäck og landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni og Svíinn tók því ekkert illa upp þótt að Aron Einar reyndi að stelast aðeins inn í viðtal Vísis við Lagerbäck í gær.

Landsliðið græddi á klúbbsreglunni í Cardiff City

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, segist vera mjög bjartsýnn að geta spilað á móti Hollandi á fimmtudaginn kemur. Aron Einar æfði með íslenska liðinu í dag og góð hvíld frá helginni kom þar sterk inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×