Fótbolti

Lars: Ekkert internet og bara nokkrir farsímar

Tómas þór Þórðarson skrifar
Leikmenn íslenska landsliðsins í Frakklandi og þjálfarar fengu dagsfrí frá fjölmiðlum í gær eftir sigurinn á Englandi en í dag stukku þjálfararnir aftur upp á hestinn og svöruðu spurningum blaðamanna í 45 mínúturá Novotel í Annecy.

Nokkrir sænskir fréttamenn fylgja íslenska liðinu hvert fótmál en þeir vildu vita hvort Lars væri meðvitaður um hversu ævintýralega vinsæll hann er í heimalandinu þessa stundina vegna árangurs strákanna okkar.

„Auðvitað hef ég tekið eftir þessu. Ég er búinn að tala við fólk heima og ég fer aðeins á internetið þannig ég er meðvitaður um hvað er að gerast. Það er alltaf betra að vera í jákvæðu umhverfi. Það mikilvægasta er samt það sem er að gerast hérna,“ sagði Lars á blaðamannafundi í dag.

Lars var einn af njósnurum sænska landsliðsins á HM 94 í Bandaríkjunum þar Svíar gerðu sér lítið fyrir og unnu bronsið. Eðlilega var gleðin mikil í Svíþjóð á meðan mótinu stóð en Lagerbäck og sænsku strákarnir voru ekki jafnmeðvitaðir um gleðina heima fyrir og íslensku strákarnir núna á gervihnattaröld.

„Það áttaði sig enginn á því hversu stórt þetta var í Svíþjóð því það var ekkert internet og í öllum sænska hópnum voru bara nokkrir farsímar. Þegar maður kom heim til Svíþjóðar sá maður að hægt er að bera þetta saman við það sem er að gerast á Íslandi núna. Það er líka svipaður andi í íslenska hópnum núna og var hjá Svíþjóð þá,“ sagði Lars.

Annar gamall gamall hundur í faginu, Egil Drillo Olsen, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs, sagði í gær að Lars ætti að vera maðurinn sem tekur við Englandi en tap enska liðsins gegn Íslandi var síðasti leikur Roy Hodgson. Það er ekki að fara að gerast.

„Nei, það held ég ekki. Ég verð að átta mig á því að það er kominn tími til að hvíla sig aðeins. Vonandi get ég starfað áfram við fótbolta en ég held ég taki ekki annað þjálfarastarf. Þó þetta sé fallega sagt af Drillo er ég ekki í myndinni hjá Englendingum held ég. Sendu honum samt mínar bestu kveðjur og þakkaðu honum fyrir,“ sagði Lars Lagerbäck.

Alla fréttina má sjá í spilaranum hér að ofan.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Hannes: Ég er stoltur Halldórsson

Hún var eftirminnileg stundin þegar Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, fór og faðmaði föður sinn í stúkunni á Allianz Riviera leikvanginum í Nice eftir á Íslandi hafði unnið England í sextán liða úrslitunum á EM í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×