Fótbolti

Lars: Eiður er enn frábær fótboltamaður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lars Lagerbäck var að vonum ánægður með 0-3 sigur Íslands á Kasakstan í Astana í dag.

„Það er fínt að vera kominn aftur á sigurbraut. Strákarnir spiluðu vel og við lögðum mikið í leikinn,“ sagði Lars í viðtali við RÚV eftir leikinn.

„Strákarnir fylgdu leikplaninu vel og framkvæmdu það sem við töluðum um að gera.“

Hann hrósaði einnig Eiði Smára Guðjohnsen fyrir hans frammistöðu í leiknum en Bolton-maðurinn skoraði fyrsta mark Íslands á 20. mínútu.

„Hann er enn frábær fótboltamaður. Ástæðan fyrir því að hann var í byrjunarliðinu var að við vildum halda boltanum vel innan liðsins,“ sagði Lars en viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Fyrsti landsleikur Emils með tattú af pabba heitnum

Emil Hallfreðsson mætir ekki alveg eins til leiks í dag og í síðasta landsleik í nóvember. Hann ákvað að minnast föður síns með sérstökum hætti þegar hann fékk sér húðflúr með honum á handlegginn.

Þrjú mörk og þrjú stig í Astana

Ísland komst upp að hlið Tékklands á toppi A-riðils í undankeppni EM 2016 með öruggum 0-3 sigri á Kasakstan í Astana í dag. Birkir Bjarnason skoraði tvö marka Íslands og Eiður Smári Guðjohnsen eitt.

Twitter logar eftir mark Eiðs

Samskiptavefurinn Twitter gjörsamlega logaði eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir gegn Kazakstan, en leikið er ytra. Markið kom eftir tuttugu mínútna leik, en staðan í leiknum er 1-0 þegar þetta er skrifað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×