Fótbolti

Larry Bird hefði aldrei dottið það í hug að fara í liðið hans Magic

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Larry Bird, Magic og Kevin Durant.
Larry Bird, Magic og Kevin Durant. Samsettar myndir frá Getty
NBA-stórstjarnan Kevin Durant kom mörgum á óvart á dögunum með því að semja við Golden State Warriors, liðið sem sló Durant og félaga í Oklahoma City Thunder út úr úrslitakeppninni í ár. Margir hafa tjáð sig um ákvörðun Durant og meðal þeirra er NBA-goðsögnin Larry Bird.

Larry Bird sagði að hann hefði aldrei getað hugsað sér það að ganga til liðs við helstu keppninauta sína. ESPN segir frá.

Larry Bird lék allan sinn NBA-feril með Boston Celtics og vann þrjá titla með félaginu. Mikið hefur verið talað og skrifað um það að einvígi hans og Boston-liðsins við Magic Johnson og félaga í Los Angeles Lakers hafi lagt grunninn að velgengni NBA-deildarinnar.

Larry Bird var þrisvar valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar og Magic Johnson fékk þau verðlaun einnig þrisvar sinnum. Þeir voru valdir bestir á árunum 1984 til 1990 en sá eini annar sem var valinn bestur á þessum árum var Michael Jordan tímabilið 1987-88.

Magic Johnson varð alls fimm sinnum NBA-meistari með Los Angeles Lakers liðinu þar af tvisvar sinnum eftir að Bird vann sinn síðasta titil 1986.

„Ég veit að á sínum tíma þá hefði mér aldrei dottið það í hug að fara til Lakers til að spila með Magic Johnson. Ég hefði frekar viljað vinna hann," sagði Larry Bird og bætti við:

„Ég hefði aldrei getað hugsað mér að fara til annars liðs með frábærum leikmönnum því ég var að spila með frábærum leikmönnum og var á góðum stað," sagði Bird.

Bird varð NBA-meistari strax á öðru tímabili og því kannski erfitt að bera sig saman við Kevin Durant sem hefur nú spilað í níu tímabil án þess að vinna NBA-titilinn. Bird vann NBA-meistari í þriðja sinn á sínu sjöunda tímabili.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×