Viðskipti erlent

Langur innkaupalisti Kína í Evrópu

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Kínverskur fjárfestir skoðar stöðu hlutabréfa.
Kínverskur fjárfestir skoðar stöðu hlutabréfa. vísir/epa
Kínversk stórfyrirtæki hafa sýnt áhuga á að fjárfesta í 110 stórfyrirtækjum í Evrópu í ár. Í fyrra fjárfestu Kínverjar fyrir 17,6 milljarða dollara í erlendum tæknifyrirtækjum. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs fjárfestu þeir í erlendum fyrirtækjum fyrir enn hærri upphæð.

Kínversk stjórnvöld hvetja kínversk fyrirtæki til að kaupa og fjárfesta í erlendum fyrirtækjum til að tryggja sér tæknikunnáttu, einkaleyfi og markaðshlut.

Þótt evrópsk fyrirtæki séu ekki mótfallin viðskiptunum benda þau á að mismununar gæti, að því er greint er frá á viðskiptavefnum Dagens næringsliv. Það sé eðlilegt að kínverskur fjárfestir geti keypt flugvöll í Evrópu. Óhugsandi sé hins vegar að evrópskt fyrirtæki geti gert slíkt hið sama í Kína.Jafnframt er vitnað í ummæli fulltrúa þýska iðnfyrirtækisins BASF í Kína, Jörg Wuttke, um að svo virðist sem innkaupalisti Kínverja sé langur. Það auki á áhyggjur manna um að „rauða Kína kaupi Evrópu“.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×