Innlent

Langflestir þingmenn með einhver hliðarverkefni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Samkvæmt hagsmunaskráningu er Bjarni Benediktsson forsætisráðherra ekki í öðru launuðu starfi. Þar segir jafnframt að hann eigi sæti í skipulagsnefnd Garðabæjar.
Samkvæmt hagsmunaskráningu er Bjarni Benediktsson forsætisráðherra ekki í öðru launuðu starfi. Þar segir jafnframt að hann eigi sæti í skipulagsnefnd Garðabæjar. vísir/ernir
Heimildarmynd, vefsíðugerð og kennsla er á meðal verkefna sem sitjandi þingmenn vinna nú að samhliða þingmennskunni. Flestir eru með einhvers konar hliðarverkefni. Tveir eru í námi með fram störfum og einn hefur nýlokið námi.

Vísir hafði samband við alla þingmenn og ráðherra og óskaði eftir svörum um hvort þeir leggðu stund á nám eða önnur störf með fram þingmennskunni eða taki virkan þátt í félagsstörfum.

Lögfræði, alþjóðaviðskipti og húsasmíði

Tveir þingmenn eru í námi en það eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem er að ljúka meistararitgerð í lögfræði og Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem er í tveimur námskeiðum á húsasmíðabraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, lauk í síðustu viku meistaranámi í alþjóðaviðskiptum við Háskólann á Bifröst.

Nokkrir þingmenn eru í launuðum störfum samhliða þingmennskunni. Það er meðal annars Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, sem vinnur með Lífsmynd ehf. að heimildarmynd fyrir Ríkisútvarpið, auk þess sem hann vinnur að gerð eldfjalla- og skjálftamiðstöðvar á Hvolsvelli.

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og formaður skipulagsnefndar. Hún á sæti í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og er stjórnarmaður í Strætó bs. Þá situr hún í stjórn hagsmunasamtaka Reykjalundar.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, starfar sem stundakennari við Háskóla Íslands, kennir á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi og rekur lögmannsstofu.

Jóna Sólveig Elínardóttir, þingmaður Viðreisnar, er aðjunkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands en segist ekki sinna verkefnum öðrum en þeim sem tengjast lokafrágangi námskeiða sem kennd voru á haustmisseri.

Starfar stundum sem tónlistarmaður

Þá vinnur Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar, ýmis trúnaðarstörf fyrir Reykjavíkurborg og er formaður hverfisráðs Breiðholts. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra segist stundum starfa sem tónlistarmaður og stundum þiggja laun fyrir. Hann er jafnframt stjórnarmaður í Skákakademíu Reykjavíkur, stjórnarmaður í Spock ehf og stjórnarmaður á Bókmenntahátíð Reykjavíkur en þau störf eru ólaunuð.  

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vinnur tímavinnu sem flugumferðarstjóri í flugturninum á Akureyri. Hann situr einnig í stjórn Norðurorku og er í stjórn Markaðsstofu Norðurlands. Þá er hann annar tveggja formanna Hjartans í Vatnsmýri.  

Pistlahöfundur hjá Morgunblaðinu

Sigríður Á Andersen dómsmálaráðherra fær laun fyrir pistlaskrif í Morgunblaðið og Theodóra S. Þorsteinsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, situr í nefnd á vegum Kópavogsbæjar og er stjórnarmaður í Isavia. Þá situr hún í ýmsum nefndum Kópavogsbæjar. Þá vinnur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, að gerð fræðsluvefs fyrir Geðhjálp. Hún tekur fram að um sé að ræða rannsóknarverkefni sem sé á lokametrunum og að greiðslur eftir að hún tók við þingmennsku hafi ekki farið yfir hálfa milljón og verði ekki hærri.

Ekki svöruðu allir þingmenn tölvupóstinum og var þá notast við hagsmunaskráningu þingmanna á Alþingisvefnum. Hagsmunaskráningin hefur í einhverjum tilfellum ekki verið uppfærð og/eða upplýsingar vantar.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir önnur störf og félagastörf þingmanna, samkvæmt svörum þeirra og hagsmunaskráningu. Listinn er ekki tæmandi en frekari upplýsingar eru að finna á vef Alþingis.

Ari Trausti Guðmundsson

vinnur með Lífsmynd ehf. að heimildarmynd fyrir Sjónvarpið

vinna við gerð LAVA – eldfjalla- og jarðskálftamiðstöðvar Íslands á Hvolsvelli

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

að ljúka meistararitgerð í lögfræði.

Ásmundur Friðriksson

formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Í stjórn Stórstúku Oddfellow-reglunnar á Íslandi. Starfar með Skötumessunni í Garði, Keflavíkurkirkju og vinnur að góðgerðarmálum á Hellu, Hornafirði og víðar. Varamaður í stjórn Búmanna.

Benedikt Jóhannesson

formaður Hollvinafélags Menntaskólans í Reykjavík.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

virkur félagi í slysavarnardeild kvenna í Ólafsfirði og Soroptmistum.

Bryndís Haraldsdóttir

bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ – formaður skipulagsnefndar. Á sæti í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, og stjórnarmaður í Strætó bs. Situr í stjórn hagmunasamtaka Reykjalundar.

Brynjar Níelsson

stundakennsla við HÍ

kennsla á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi

rekstur eigin lögmannsstofu.

Eygló Harðardóttir

tvö námskeið á húsasmíðabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Kvöldskóli vorið 2017.

Guðjón S. Brjánsson

situr í stjórn Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, varaformaður Alzheimersamtakanna á Íslandi, varamaður í stjórn Starfsendurhæfingar Vesturlands.

Guðlaugur Þór Þórðarson

varaformaður AECR, alþjóðlegra samtaka stjórnmálaflokka sem aðhyllast Evrópu- og alþjóðasamstarf sem og hugmyndir um einstaklingsfrelsi, þingræði og virðingu fyrir fullveldi þjóðríkja.

Hanna Katrín Friðriksson

stjórn Substantia ehf.

stjórn Hlíðarenda ses

Haraldur Benediktsson

formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs.

búrekstur.

Trúnaðarstörf: Jón Hreggviðsson ehf, 50 prósent eignarhlutur, félag um búrekstur. Búhöldur ehf. Stjórn Landbúnaðarsafns Íslands ses – ólaunað.

Hildur Sverrisdóttir

borgarfulltrúi

stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar.

Stjórnarmaður í Faxaflóahöfnum sf.

Jón Gunnarsson

Mar-textil, innflutningur og smávöruverslun

formaður stjórnar björgunarmiðstöðvarinnar við Skógarhlíð.

formaður félagsins Sjávarnytjar.

í stjórn Slysavarnaskóla sjómanna.

í stjórn björgunarbátasjóðs Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Jón Þór Ólafsson

starfsmaður á plani hjá malbikunarstöðinni Höfða.

formaður stjórnar Grasrótarmiðstöðina-rekstrarfélag.

stjórnarmaður IMMI, alþjóðasamtök um upplýsinga- og tjáningarfrelsi.

Jóna Sólveig Elínardóttir

aðjunkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands .Sinnir ekki verkefnum öðrum en þeim sem tengjast lokafrágangi námskeiða sem kennd voru á haustmisseri 2016.

Nichole Leigh Mosty

trúnaðarstörf á vegum Reykjavíkurborgar. Formaður Hverfisráðs Breiðholts.

Njáll Trausti Friðbertsson

tímavinna sem flugumferðarstjóri í flugturninum á Akureyri. Stjórn Norðurorku, stjórn Markaðsstofu Norðurlands. Annar tveggja formanna Hjartans í Vatnsmýri, ekki fengist upplýsingar um hvort starfið sé launað.

Oddný Harðardóttir

Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Stjórn Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs.

Stjórn Minningarsjóðs um Gísla Torfason.

Stjórn Menningarseturs að Útskálum.

Stjórn Menntasjóðs Sigurðar Sívertsen.

Kvenfélagið Genf í Garði

DKG félag kvenna um menntamál.

Óttarr Proppé

tónlistarmaður, ekki fast starf. Þiggur stundum laun fyrir.

Stjórnarformaður í Skákakademíu Reykjavíkur, sjálfseignarstofnun – ólaunað

Stjórnarmaður í Spock ehf – ólaunað

Stjórnarmaður í Bókmenntahátíð í Reykjavík - ólaunaðFormaður stjórnar Reykjavík-bókmenntaborg Unesco – ólaunað

Páll Magnússon

stjórnarmaður í ÍBV íþróttafélagi í Vestmannaeyjum.

Sigríður Á. Andersen

pistlahöfundur hjá Morgunblaðinu

í stjórn Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins

Sigurður Ingi Jóhannsson

skólanefnd Menntaskólans að Laugarvatni

fulltrúi Hrunamannahrepps í stjórn Heilsuþorp Flúðir ehf.

Silja Dögg Gunnarsdóttir

lauk fjarnámi við Háskólann á Bifröst í febrúar, var í meistaranámi í alþjóðaviðskiptum MIB.

situr í stjórn  júdófélags UMFN

Teitur Björn Einarsson

varamaður í stjórn Landsvirkjunar

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

situr í nefnd á vegum Kópavogsbæjar

stjórnarmaður í ISAVIA

trúnaðarstörf:

Sit í sveitarstjórn Kópavogsbæjar.

Formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar.

Formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar.

Almannavarnarnefnd og Hafnarstjórn.

Sit í nefnd um ritun hvítbókar í samgöngumálum.

Vilhjálmur Árnason

varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Grindavíkurbæjar.

varamaður í bæjarráði Grindavíkurbæjar.

Vilhjálmur Bjarnason

í stjórn Samtaka sparifjáreigenda.

leiðbeinandi í ritgerðum nemenda í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

stjórnarformaður hjá Leikfélagi Reykjavíkur.

stjórn jafnréttissjóðs.

stjórn Þroskahjálpar.

stjórn Golfsambands íslands.

Þorsteinn Víglundsson

stjórn Hollvinasamtaka Menntaskólans í Reykjavík.

varamaður í stjórn Vertigo.

varamaður í stjórn Lindarflatar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

verktaki fyrir landssamtökin Geðhjálp.

formaður Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×