Innlent

Langar raðir og seinkanir vegna veikinda lögreglumanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndin er frá verkfallsaðgerðum í fyrra þegar langar raðir mynduðust.
Myndin er frá verkfallsaðgerðum í fyrra þegar langar raðir mynduðust. Vísir
Meira en hálftíma seinkun varð á fimm flugferðum frá Keflavík í morgun vegna raða sem mynduðust í landamæraeftirliti. Þar sinntu fimm lögreglumenn eftirliti en eru yfirleitt töluvert fleiri. Fram hefur komið í fréttum í morgun að fjölmargir lögreglumenn um land allt tilkynntu veikindi í dag.

„Það voru töluverðar biðraðir í morgun og seinkun á flugi,“ segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Isavia. Hann segir að vélarnar snemma í morgun hafi verið nokkurn veginn á áætlun. Svo þegar farþegum fór að fjölga urðu raðirnar lengri með fyrrnefndum afleiðingum.

Sjá einnig:Formaðurinn sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi ISAVIA.Vísir/Bítið
Áframhaldandi raðir jafni lögreglumenn sig ekki

„Síðustu farþegarnir voru að fara í gegnum landamærin klukkan 8:15. Venjulega er það um klukkan 7,“ segir Guðni. Flugfélögin verði smá tíma að vinna upp tafirnar því vélarnar komi seinna áfangastað og fara þá seinna af stað í framhaldinu.Vélarnar séu í svo mikilli notkun.

„Sólarhringurinn ætti að nægja til að ná upp klukkutíma seinkun.“

Guðni segir ljóst að haldi fjarvera lögreglumanna frá vinnu vegna veikinda áfram megi búast við röðum í landamæraeftirlitinu í Keflavík.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×