Innlent

Landvernd fer fram á nýtt umhverfismat

Birta Svavarsdóttir skrifar
Lengd fyrirhugaðrar Þeistareykjalínu 1 er 28,2 km frá Þeistareykjum að Bakka og liggja 7,7 km innan Þingeyjarsveitar.
Lengd fyrirhugaðrar Þeistareykjalínu 1 er 28,2 km frá Þeistareykjum að Bakka og liggja 7,7 km innan Þingeyjarsveitar. Mynd/Völundur Jónsson
Landvernd telur að umhverfismeta beri fleiri valkosti en loftlínu frá Kröflu að Bakka svo draga megi úr umhverfisáhrifum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landvernd, en framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 hafa verið stöðvaðar að kröfu Landverndar. Vísir greindi frá málinu á sunnudag.

Sjá einnig:Stöðva framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4

Í tilkynningu frá Landsneti á sunnudag kom fram að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi fyrir helgi fellt úrskurði um stöðvun framkvæmda vegna ákvarðana Þingeyjarsveitar um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4. Eru þetta bráðabirgðaúrskurðir á meðan kærur Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfanna eru til meðferðar.

Í ljósi fréttatilkynningar Landsnets vill Landvernd ítreka fyrri afstöðu sína um að umhverfismeta beri fleiri valkosti en loftlínu frá Kröflu að Bakka svo draga megi úr umhverfisáhrifum.

Telur Landvernd að skoða þurfi „bæði jarðstrengi og loftlínur og valkosti sem sneiða hjá verðmætum hraunum eins og Leirhnjúkshrauni og Þeistareykjahrauni, en framkvæmdir Landsnets hafa nú verið stöðvaðar til bráðabirgða á þessum svæðum vegna náttúruverndarsjónarmiða.“

Segir í tilkynningu Landverndar að núverandi umhverfismat sé úrelt og að „aðeins með nýju umhverfismati fáist raunhæfur samanburður um hvaða leiðir valda minnstum umhverfisáhrifum.“

Landvernd hafnar því að að reist verði loftlína sem flutt geti tífalda raforkuþörf kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka. Telja forsvarsmenn Landverndar hugsanlegar stækkanir verksmiðjunnar þegar fram líða stundir ekki réttlæta svo stóra línu, þegar minni lína dugi, líkt og kemur fram í útreikningum Landsnets.

„Ekki þætti það góður búmaður sem reisir fjós fyrir tífalt fleiri kýr en hann hyggst ala, jafnvel þó svo að hann hyggist fjölga þeim um helming í nánustu framtíð. Landvernd hafnar því að Landsnet hafi sjálfdæmi um ákvarðanir sem þessar. Almenningi þarf að hleypa að málum og það verður best gert með nýju umhverfismati.“

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×