Viðskipti innlent

Landsvirkjun og PCC BakkiSilicon undirrita nýjan rafmagnssamning

Atli Ísleifsson skrifar
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar.
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Vísir/Anton
Landsvirkjun og PCC BakkiSilicon hf. hafa undirritað nýjan samning um sölu rafmagns til kísilmálmverksmiðju, sem PCC BakkiSilicon áformar að reisa á Bakka við Húsavík.

Gert er ráð fyrir að verksmiðjan hefji starfsemi á árinu 2017 og framleiði í fyrsta áfanga allt að 36 þúsund tonn af kísilmálmi og noti 58 MW af afli.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að nýi rafmagnssamningurinn sé efnislega svipaður og fyrri rafmagnssamningur félaganna frá árinu 2014 en með nokkrum frávikum þó.

„Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í desember síðastliðnum að hefja skoðun á fyrri rafmagnssamningi aðila frá 2014. Þeim rafmagnssamningi hafa samningsaðilar sameiginlega rift enda ýmis skilyrði samningsins óuppfyllt og tímaákvæði hans ekki lengur raunhæf. Fyrri samningur aðila frá 2014 er því ekki lengur til staðar sem gildur samningur. Nýi rafmagnssamningurinn var tilkynntur til ESA í dag.

„Við erum nú sem fyrr mjög ánægð með samstarf okkar við PCC BakkiSilicon hf. og einnig með samstarfið sem við höfum átt með ESA við gerð nýja samningsins. Við erum viss um að kísilmálmiðnaður muni dafna á Íslandi til langs tíma þar sem raforka er unnin úr endurnýjanlegum orkugjöfum,“ sagði Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

„Samstarf okkar við Landsvirkjun hefur verið traust og með nýjum raforkusölusamningi er mikilvægum áfanga náð. Við teljum fyrsta flokks aðstæður vera fyrir hendi á Bakka á Íslandi til að byggja og reka kísilmálmverksmiðju okkar,“ segir Peter Wenzel, sem er stjórnarmaður í PCC BakkiSilicon hf. og leiðir verkefnið fyrir hönd fyrirtækisins.

Samningurinn er undirritaður með ákveðnum en tiltölulega fáum fyrirvörum sem uppfylla þarf fyrir mitt sumar, þ.m.t. lok samninga við aðra aðila og að ESA geri ekki athugasemdir við efni samningsins.

Um móðurfélag PCC BakkiSilicon hf.

Móðurfélag PCC BakkiSilicon hf. er PCC SE, sem er samstæða iðnfyrirtækja með höfuðstöðvar í Duisburg, Þýskalandi. Samstæðan er með starfsemi í 16 löndum og með um 2.800 starfsmenn,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×