Viðskipti innlent

Landsvirkjun hagnaðist um 8,5 milljarða á fyrri hluta ársins

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Næsta verk Landsvirkjunar á eftir Þeistareykjavirkjun verður sennilega stækkun Búrfellsvirkjunar.
Næsta verk Landsvirkjunar á eftir Þeistareykjavirkjun verður sennilega stækkun Búrfellsvirkjunar. mynd/landsvirkjun
Landsvirkjun hagnaðist um 8,5 milljarða króna á fyrri hluta ársins. Það er nærri tvöfalt meiri hagnaður en á sama tímabili á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Afkoma fyrirtækisins, áður en tekið er tillit til vaxtagreiðslna og vaxtatekna, skattgreiðslna og afskrifta, var jákvæð upp á 22,5 milljarða króna. Rekstrartekjur námu 28,7 milljörðum króna sem er 6,2% hækkun frá sama tíma í fyrra. Skuldir fyrirtækisins lækkuðu um tæpa 23 milljarða króna og voru í lok júní 268,5 milljarður króna.

Hörður Arnarson
„Reksturinn gekk almennt vel á fyrri helmingi ársins og sterkt sjóðstreymi gerði okkur kleift að halda áfram að lækka nettó skuldir Landsvirkjunar, en þær lækkuðu um 23 milljarða króna á tímabilinu,“ segir Hörður Arnarson forstjóri fyrirtækisins. 

Hörður bætir við að lykilkennitölur fyrirtækisins hafi styrkst, eiginfjárhlutfall er 42,2% miðað við 39,9% um áramótin og skuldsetning samstæðunnar mæld á móti rekstrarhagnaði fyrir afskriftir lækkar úr 6,6 í 5,8. 

„Á fyrri helmingi ársins urðu síðan þau jákvæðu tíðindi að öllum fyrirvörum var aflétt í raforkusölusamningi við PCC BakkiSilicon hf. Þá hófust framkvæmdir við byggingu Þeistareykjavirkjunar á tímabilinu. Mikil eftirspurn er eftir raforku á Íslandi, frá fjölbreyttum iðnaði sem er tilbúinn að greiða hærra verð en áður. Landsvirkjun stefnir á að nýta öll þau tækifæri sem fyrirtækið hefur til aukinnar orkuvinnslu, til að mæta þessari áhugaverðu eftirspurn,“ segir Hörður.

Að undanförnu hefur fyrirtækið lagt mikla áherslu á að greiða niður skuldir síðustu ára en nettó skuldir hafa lækkað um rúma 64 milljarða króna frá árslokum 2011. 

„Afkoma Landsvirkjunar mun áfram ráðast að miklu leyti af þróun álverðs, vaxta og gjaldmiðla. Tekjur Landsvirkjunar eru að hluta til tengdar verði á áli og breytingar á álverði á heimsmörkuðum hafa því áfram áhrif á framtíðartekjur Landsvirkjunar. Álverð hefur lækkað umtalsvert og mun það hafa neikvæð áhrif á afkomu Landsvirkjunar. Meirihluti lána fyrirtækisins ber breytilega vexti og því er áframhaldandi lágt vaxtastig mikilvægt rekstrinum,“ segir Hörður að lokum.


Tengdar fréttir

Verð á áli heldur áfram að lækka

Álverð er komið langt niður fyrir viðmiðunarverð vegna arðsemi Kárahnjúkavirkjunar. Um 30 prósent af tekjum Landsvirkjunar eru bundin álverði.

Mengun breytt í fallega steina

Tvö íslensk verkefni gætu orðið mikilvæg vopn í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Verkefnin Carbfix og Sulffix ganga út á það að binda kolefni og brennisteinsmengun djúpt í berglögum. Menguninni er breytt í steina sem haldast stöðugir í milljónir ára






Fleiri fréttir

Sjá meira


×