Innlent

Landsréttur á laggirnar í ársbyrjun 2018

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólöf Nordal innanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpinu.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpinu. vísir/Vilhelm
Lagafrumvörp um stofnun millidómstigs voru samþykkt á Alþingi nú í morgun. Eru það annars vegar lög um dómstóla og hins vegar breyting á lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála. Með breytingunum verður til nýr áfrýjunardómstóll, Landsréttur, og hefur hann aðsetur í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2018 að því er segir á vef Innanríkisráðuneytisins.

Lagabreytingarnar þýða að dómstigin í landinu verði þrjú, þ.e. héraðsdómstólar, Landsréttur og Hæstiréttur og um leið eru gerðar verulegar breytingar á stjórnsýslu dómstólanna. Sameiginleg stjórnsýsla allra þriggja dómstiga er færð undir nýja stofnun á vegum dómstólanna og stjórnsýsla dómstólanna þar með efld og sjálfstæði þeirra styrkt.

„Breytingarnar snerta allt samfélagið en þó fyrst og fremst þá sem leita þurfa eftir úrlausn dómstóla eða þurfa að þola úrlausn dómstóla bæði í einkamálum og sakamálum. Þá hafa þær mikla þýðingu fyrir þá sem starfa í dómskerfinu, jafnt dómara sem aðra starfsmenn dómstóla, lögmenn og ákæruvald en einnig aðrar stofnanir réttarvörslukerfisins. Stofnun Landsréttar felur í sér mikla réttarbót en með honum er tryggð milliliðalaus sönnunarfærsla á tveimur dómsstigum,“ segir á vef ráðuneytisins.

 


Tengdar fréttir

Ég er bara að fylgja minni sannfæringu

Jón Steinar Gunnlaugsson segir öllum ljóst að málaálagið á Hæstarétti sé of mikið. Enginn komist yfir að dæma 300 mál á ári án þess að það bitni á niðurstöðu dómanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×