Viðskipti innlent

Landsnet semur um lagningu jarðstrengs út í Helguvík

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, rituðu undir samninginn sem er upp á tæplega 228 milljónir króna.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, rituðu undir samninginn sem er upp á tæplega 228 milljónir króna. Vísir/athygli
Landsnet undirritaði í dag samkomulag við ÍSTAK um lagningu jarðstrengs milli Fitja og Helguvíkur. Miðað er við að framkvæmdum verði að fullu lokið haustið 2015.

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, rituðu undir samninginn sem er upp á tæplega 228 milljónir króna.

Í tilkynningu frá segir að ÍSTAK hafi milka reynslu af lagningu jarðstrengja fyrir Landsnet og lagði meðal annars Nesjavallastreng 2,25 kílómetra langan streng milli Nesjavalla og Geitháls, árið 2010. „Strax verður hafist handa við undirbúning og slóðagerð í Helguvík og standa vonir til að hægt verði að byrja að grafa fyrir jarðstrengnum í næstu viku.

Undirbúningur jarðstrengsverkefnisins hófst hjá Landsneti haustið 2014, í framhaldi af samningi um flutning raforku til kísilvers United Silicon sem kveður á um að tengingin verði tilbúin 1. febrúar 2016. Strengurinn mun tengja saman Stakk, nýtt tengivirki Landsnets í Helguvík sem nú er í byggingu, og tengivirki félagsins á Fitjum. Hann er gerður fyrir 132 kílóvolta (kV) spennu, verður 8,5 km langur og er með heilum álleiðara, sem er nýmæli í jarðstrengjum. Samið var við þýska fyrirtækið Nexans um framleiðslu strengsins og mun það jafnframt sjá um allar tengingar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×