Golf

Landsliðsþjálfarinn setur allt sitt traust á stelpur úr GR og Keili á EM á Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er sá kylfingur íslenska liðsins sem er efst á WAGR heimslista.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er sá kylfingur íslenska liðsins sem er efst á WAGR heimslista. Mynd/Golfsamband Íslands
Evrópumót kvennalandsliða í golfi verður haldið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ dagana 4.-9. júlí. Þetta verður stærsta alþjóðlega golfmót sem haldið hefur verið á Íslandi fram til þessa. Á mótinu munu keppa fremstu áhugakylfingar kvenna í Evrópu.

Frakkar hafa titil að verja á þessu móti en Frakkar hafa fagnað Evrópumeistaratitlinum í undanförnum tveimur keppnum. Um tuttugu þjóðir senda lið til keppni og verða keppendur um 120 alls. Sex kylfingar skipa hvert lið.

Síðast fór EM kvenna fram í Helsingør í Danmörku. Íslenska sveitin endaði í 19. sæti. Sunna Víðisdóttir úr GR endaði í 13. sæti í einstaklingskeppninni í Danmörku. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni endaði í 11. sæti árið 2009 og er það besti árangur Íslendings í einstaklingskeppninni á EM eftir því sem best er vitað.

Keppnisfyrirkomulagið á EM er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur fyrstu tvo keppnisdagana og telja fimm bestu skor af alls sex í hverri umferð. Þjóðunum er að því loknu skipt upp í A, B og C riðil þar sem leikin er holukeppni. Í A-riðli leika þjóðirnar sem enduðu í 1.-8. sæti í höggleiknum, í B-riðli leika þjóðirnar í sætum 9.-16. og í C-riðli leika þjóðirnar sem eru þar fyrir neðan.

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, hafði ekki valið landsliðið þegar Golf á Íslandi ræddi við hann um væntingar hans og markmið liðsins fyrir EM. Einn kylfingur tryggði sér öruggt sæti í liðinu með því að sigra á úrtökumótinu sem haldið var fyrir kvennaliðið líkt og hjá karlaliðinu. Þar voru leiknar 72 holur á Urriðavelli og sú sem var á besta skorinu tryggði sér sæti í A-landsliðinu.

„Ég er með hófstilltar væntingar fyrir þetta mót. Það væri frábært að komast í hóp 8 efstu í A-riðli en þá þyrfti allt að ganga upp hjá okkur. Við vorum aðeins tveimur höggum frá því að komast í A-riðilinn fyrir tveimur árum og það getur allt gerst á svona móti," sagði Úlfar í viðtalinu.

Úlfar hefur valið EM lið Íslands en í því eru þrír kylfingar úr GR og þrír kylfingar úr GK. Þess ber að geta að atvinnukylfingarnir Valdís Þóra Jónsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru ekki gjaldgengar í þessa keppni fyrir áhugakylfinga.

Stúlknalandslið Íslands verður við keppni á EM á sama tíma og yngstu afrekskylfingar landsins verða því ekki í A-landsliðinu að þessu sinni.

„Ég geri ráð fyrir að Frakkar, Svíar, Þjóðverjar, Spánverjar og Ítalir verði í baráttunni um Evrópumeistaratitilinn. Veðrið verður vonandi frábært en ef við fáum íslenskt sumarveður, rok og rigningu, þá gæti það hentað vel fyrir þjóðir á borð við England, Skotland og vonandi okkur Íslendingana líka,“ sagði Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari.



EM-lið Íslands sem keppir á heimavelli:

Anna Sólveig Snorradóttir, GK – val landsliðsþjálfara

Berglind Björnsdóttir, GR – efst á stigalista

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK – efst á WAGR heimslista

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – efst í úrtökumóti fyrir kvennalandslið

Signý Arnórsdóttir, GK – val landsliðsþjálfara

Sunna Víðisdóttir, GR – val landsliðsþjálfara

Þjálfari: Úlfar Jónsson

Liðsstjóri: Ragnar Ólafsson



Úrslit síðustu ára á EM kvenna:

2015 Helsingør, Danmörk.

Evrópumeistarar Frakkland (2) – Ísland 19. sæti.

2014 Ljubljana, Slóvenía.

Evrópumeistarar Frakkland (1) – Ísland 16. sæti.

2013 Fulford, England.

Evrópumeistarar Spánn (5) – Ísland 17. sæti.

2011 Murhof, Austurríki.

Evrópumeistarar Svíþjóð (6) – Ísland 16. sæti.

2010 La Manga Club, Spánn.

Evrópumeistarar Svíþjóð (5) – Ísland 17. sæti.

2009 Bled, Slóvenía.

Evrópumeistarar Þýskaland (1) – Ísland 16. sæti.

2008 Stenungsund, Svíþjóð.

Evrópumeistarar Svíþjóð (4) – Ísland tók ekki þátt.

2007 Castelconturbia, Ítalía.

Evrópumeistarar Spánn (4) – Ísland tók ekki þátt.

2005 Karlstad, Svíþjóð.

Evrópumeistarar Spánn (3) – Ísland 15. sæti.

2003 Frankfurt, Þýskaland.

Evrópumeistarar Spánn (2) – Ísland tók ekki þátt.

2001 Golf de Meis, Spánn.

Evrópumeistarar Svíþjóð (3) – Ísland 16. sæti.

1999 St Germain, Frakkland.

Evrópumeistarar England (1) – Ísland tók ekki þátt.

1997 Nordcenter G&CC, Finnland.

Evrópumeistarar Svíþjóð (2) – Ísland tók ekki þátt.

1995 Mílanó, Ítalía.

Evrópumeistarar Spánn (1) – Ísland 17. sæti.

1993 Royal Hague, Holland.

Evrópumeistarar Svíþjóð (1) – Ísland 16. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×