Íslenski boltinn

Landsliðsmarkvörður Mexíkó á leið til Akureyrar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Santiago í landsleik.
Santiago í landsleik. vísir/getty
Pepsi-deildarlið Þórs/KA samdi í dag við landsliðsmarkvörð Mexíkó.

Sú heitir Cecilia Santiago og er 21 árs gömul og 174 sentimetra há. Hún tekur við af Roxanne Barker sem hefur spilað með liðinu síðustu tvö tímabil.

Santiago spilaði með Mexíkó á HM fyrr á þessu ári og verður gaman að fylgjast með henni í íslenska boltanum næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×