Handbolti

Landsliðsfyrirliðinn skoraði sex fyrir Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur hefur verið öflugur í upphafi tímabils.
Guðjón Valur hefur verið öflugur í upphafi tímabils. Mynd/Barcelona
Sigurganga Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta heldur áfram, en katalónska stórliðið vann öruggan sjö marka sigur, 35-28, á Frigoríficos Morrazo í kvöld.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Barcelona, jafnmörg og Nikola Karabatic. Danski línumaðurinn Jesper Nöddesbo var hins vegar markahæstur Börsunga með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×