Fótbolti

Landsliðsfyrirliðinn mömmustrákur með leiðtogahæfileika frá unga aldri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Systkini Arons Einars Gunnarssonar eru stolt af litla bróður sínum sem leiðir karlalandsliðið í knattspyrnu út á völlinn í þriðja skipti á stórmóti á miðvikudaginn gegn Austurríki. Aron Einar var virkur krakki, sýndi snemma leiðtogahæfileika, var svolítið frekur og mömmustrákur. Aron á fimm systkini og er yngstur.

„Hann var náttúrulega rosalega virkur krakki, úti um allt,“ segir Hulda María Malmquist, systir Arons. Ekki hafi bara verið keppt í íþróttum heldur bókstaflega öllu.

„Hver fór fyrstur í framsætið, hver var fyrstur með Moggann - fyrstur í þetta hús,“ segir Ása Maren Malmquist. Arnór Þór, bróðir þeirra, bætir við að margt hafi brotið. Hurðar og ljósakrónur og foreldrarnir ekki alltaf verið sáttir.

„Þetta var skemmilegur tími,“ segir Arnór. Hann segir kannski aðeins of mikið að líkja ástandinu á heimilinu við dýragarð en vissulega hafi verið mikið fjör á heimilinu.

Ekki frekja og þó?

Ása Maren segir bróður sinn alltaf hafa verið kraftmikinn og stjórnað.

„Hann var kannski ekki frekja,“ segir hún en Arnór skýtur inn í: „Jú!“

„Hann hefur alltaf verið mömmustrákur,“ segir Ása Maren og útskýrir að Arnór hafi oft þurft að lúta í lægra haldi fyrir litla bróður en tveggja ára munur er á þeim Aroni og Arnóri.

Systkinin sáu öll strax að Aron væri líklegur til að ná langt í íþróttum.

„Við höfum alltaf fylgt honum, fórum yfirleitt á leik hjá þeim bræðrum,“ segir Ása Maren. Ef þau hafi haft tíma hafi þau farið á leiki. „Þá áttum við bara að koma með.“

Gerir allt til að ná leiknum

Augljóst er að Aron Einar gengur ekki heill til skógar á Evrópumótinu. En hvernig tilfinning er það fyrir systkinin að vita af bróður sínum að spila í gegnum sársaukann?

„Þetta er náttúrulega það fyrsta sem maður spyr hann að, hvernig ertu, ertu að fara að spila næsta leik,“ segir Ása. Þetta sé erfitt fyrir þau eins og hann. En hann gefi allt í þetta og geri allt sem hann geti til að ná leiknum á miðvikudaginn eins og öðrum landsleikjum Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×