Tónlist

Landslagið tilbúningur einn

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Þau Steindór Grétar Jónsson og Salóme R. Gunnarsdóttir skipa hljómsveitina Pocket Disco.
Þau Steindór Grétar Jónsson og Salóme R. Gunnarsdóttir skipa hljómsveitina Pocket Disco. Mynd/HörðurSveinsson
Hin nýstofnaða hljómsveit Pocket Disco gaf á dögunum út sitt fyrsta lag og myndband en hljómsveitin er skipuð þeim Steindóri Grétari Jónssyni og Salóme R. Gunnarsdóttur.

„Mig langaði að gera tónlist undir áhrifum gamallar ítalskrar diskótónlistar. Margrét Erla Maack vinkona mín benti mér á að tala við Salóme, hún hefði þessa dívu-eiginleika sem einkenndu diskóið. En svo þegar við fórum að vinna saman þróaðist tónlistin frekar mikið úr þeirri átt yfir í nútímalegri hljóðheim," segir Steindór Grétar um tilurð samstarfsins og hljómsveitarinnar.

Lagið ber nafnið Rock & Roll. Steindór Grétar segir þau hafa fengið talsvert margar fyrirspurnir um hvar á landinu myndbandið hafi verið tekið upp en sannleikurinn er sá að landslagið er tilbúningur einn. Við gerð þess var notast við green screen og grjót úr nágrenni náttúruperlunnar Bláa lónsins notað til þess að skapa landslagið.

Við gerð þess var einnig notast við hlaupabretti sem fengið var að láni úr kraftlyftingastöðinni Steve Gym.

Næsta lag og myndband Pocket Disco er væntanlegt eftir rúman mánuð og verður myndbandinu leikstýrt af Atla Bollasyni. 

Um hljóðhönnun, upptöku, hljóðblöndun og masteringu sá Viktor Orri Árnason. Pétur Blöndal Magnason aðstoðaði við tónsmíðar. Leikstjóri og listrænn stjórnandi myndbandsins er Emil Ásgrímsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×