Viðskipti erlent

Landsframleiðsla í Bandaríkjunum dregst saman um 2,9%

Randver Kári Randversson skrifar
Vísir/Getty
Verg landsframleiðsla í Bandaríkjunum dróst saman um 2,9% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er mesti samdráttur í bandaríska hagkerfinu í fimm ár. BBC greinir frá þessu.

Á fyrstu þremur mánuðum þess árs dróst landsframleiðsla saman um 2,9% í Bandaríkjunum. Þetta er lakari niðurstaða en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir, þar sem spáð var 1% samdrætti. Hagfræðingar vestanhafs búast þó við að hagkerfið rétti úr kútnum á öðrum ársfjórðungi þessa árs.

Helsta skýringin á samdrættinum á fyrsta ársfjórðungi er sögð vera sú að einkaneysla, sem stendur undir um tveimur þriðju hlutum hagvaxtar í Bandaríkjunum,  jókst minna en spáð hafði verið. Aðeins varð um 1% aukning í einkaneyslu en spár gerðu ráð fyrir 3,1% aukningu. Einnig er talið að óvanalega kalt veðurfar í vetur hafi haft þar áhrif.

Þá varð meiri samdráttur í útflutningi en búist hafði verið við. Útflutningur dróst saman um 8,9%, meðan spár gerðu ráð fyrir 6% samdrætti. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×