Viðskipti innlent

Landsbankinn útvistaði lögfræðiþjónustu til Motus án útboðs

jón hákon halldórsson skrifar
Motus sér um innheimtu fyrir Landsbankann.
Motus sér um innheimtu fyrir Landsbankann. vísir/vilhelm
Landsbankinn ákvað í júní að útvista allri starfsemi lögfræðideildar bankans sem snýr að innheimtu á vanskilakröfum til Motus innheimtuþjónustu. „Það er alþekkt að fyrirtæki útvisti lögfræðiinnheimtu og mjög algengt t.d. í erlendri bankastarfsemi að þessi leið sé farin, bæði til auka skilvirkni og spara fé við innheimtuna sjálfa. Þetta eru okkar markmið líka. Með þessari leið fáum við notið sérfræðikunnáttu og nýtum þaulreynt innheimtukerfi sem fyrir hendi er, í stað þess að fara í mikla fjárfestingu á eigin vegum,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Innheimtustarfsemin var ekki boðin út og ekki var send tilkynning þegar samið var við Motus. „Landsbankinn hefur um árabil útvistað hluta af innheimtu vanskilakrafna. Motus hefur lengi sinnt afmörkuðum þáttum í innheimtu fyrir bankann, reynslan af því samstarfi hefur verið góð og aukning á samstarfinu veitir ýmis tækifæri til að auka skilvirkni í innheimtumálum bankans,“ segir hann.

Kristján segir að þeim fastráðnu starfsmönnum innheimtudeildarinnar sem ekki fengu áframhaldandi starf í Landsbankanum hafi öllum verið boðið starf hjá Motus. Flestir hafi þegið það boð.

Hann segir að Landsbankinn vinni stöðugt að hagræðingu í sinni starfsemi. Þessi aðgerð hafi verið hluti af þeirri vegferð. Til dæmis megi benda á að stöðugildum í Landsbankanum hefur fækkað um 245 frá árslokum 2011, eða um 18,4%.

Landsbankinn og Motus eru tengd félög því bankinn á 43 prósenta hlut í Motus. Tveir af framkvæmdastjórum bankans, þeir Árni Þór Þorbjörnsson og Helgi Teitur Helgason, sitja í stjórn Motus.

Motus er alfarið í eigu íslenskra aðila. Auk Landsbankans á Bál ehf., félag í eigu Sigurðar Arnars Jónssonar, forstjóra Motus, og Bjarna Þórs Óskarssonar, sviðsstjóra hjá fyrirtækinu, tæplega 36 prósenta hlut. Þá eiga nokkrir aðrir starfsmenn 11 prósenta hlut í gegnum félagið Solvent og svo á Motus ehf. 10 prósenta hlut í sjálfu sér.

Íslandsbanki hefur ekki útvistað þessum sama þætti í sinni starfsemi. „Hins vegar er þetta ein leið sem við höfum verið að skoða, ásamt mörgum öðrum. Engar ákvarðanir hafa þó verið teknar,“ segir í svari frá Eddu Hermannsdóttur, samskiptastjóra Íslandsbanka. Hjá Arion banka fengust engar upplýsingar um það hvernig þessum málum er háttað hjá bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×